Beint í efni

32 (1990). fundur

31.08.2021
Bæjarráð Garðabæjar

32 (1990). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

31.08.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2108601

01

Kynning á málefnum Sorpu bs.

Á fund bæjarráð kom Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs. og gerði grein fyrir málefnum Sorpu bs. Jón Viggó kynnti árshlutauppgjör janúar - júní 2021, fjallaði um hækkun gjaldskrár vegna útflutnings á brennanlegum úrgangi og rekstur GAJA

Á fjarfundi undir þessum dagskrárlið voru bæjarfulltrúarnir, Ingvar Arnarson og Harpa Þorsteinsdóttir.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1-3.

Málsnúmer 2006130

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 (2021-2024) - lántaka.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.100.000.000, verðtryggt með 1,20% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 13 ára. Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar. Fyrir liggja drög að lánssamningi.

Málsnúmer 2106536

03

Fjárhagsáætlun 2022-2025 - minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi forsendur fjárhagsáætlana 2022-2025, dags. 13.08.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2010333

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna landsvæðis við Brekkuás.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 samkvæmt 1. mgr. 32. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr. laganna vegna svæðis við Brekkuás. Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og senda tillöguna til afgreiðslu Skipulagsstofnunar.

Málsnúmer 2005435

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis vegna lóðarinnar við Brekkuás.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ásahverfis vegna lóðarinnar við Brekkuás 2 samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga . Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Málsnúmer 2102023

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðanna við Eskiás 2,4 og 6.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðanna við Eskiás 2, 4 og 6 samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga . Tillagan var auglýst og bárust athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Málsnúmer 1906181

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um stækkun byggingarreits lóðarinnar við Jafnakur 8.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og vísar því til frekari skoðunar hjá skipulagsstjóra.

Málsnúmer 2108232

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um viðbyggingu utan byggingarreits á lóðinni við Blikanes 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Blikaness 19, 20, 21, 23, og 24 og Tjaldaness 17.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2103205

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 9-11.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 9-11. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 903.856 á íbúð m.v. BVT 780,7 stig í ágúst 2021 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Málsnúmer 2106252

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 4.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 4. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2003434

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um umferðarreglur í Urriðaholti.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um umferðarmerkingar vegna biðskyldu í Urriðaholti

Fyrir liggur minnisblað Eflu og jákvæð umsögn lögreglu. Auglýsing skal birt í B-deild Stjórnartíðinda varðandi sérákvæði fyrir umferð í Garðabæ í samræmi við framlagða tillögu, sbr. 1. og 3. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Málsnúmer 2108229

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð og lagnir í hesthúsahverfi á Kjóavöllum.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í í hesthúsahverfi á Kjóavöllum. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Málsnúmer 2108312

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Garðahrauni sunnan Garðahraunsvegar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Garðahrauni sunnan Garðahraunsvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Málsnúmer 2010304

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir bráðabirgða reiðstíg í Urriðakotshrauni.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir bráðabirgða reiðstíg í Urriðakotshrauni. Framkvæmdin er með samþykki landeiganda.

Málsnúmer 1907110

15

Afgreiðsla fjölskylduráðs varðandi tillögu að breytingu á 8. gr reglna um fjárhagsaðstoð.

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2108631

16

Áskorun varðandi sumarfrístund í Garðabæ, 26.08.21.

Bæjarráð vísar áskoruninni til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 og til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2108482

17

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi kortlagningu búsetu í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, dags. 23.08.21.

Í bréfinu er kynning á verkefni við kortlagningu á búsetu í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður um 20 m.kr. og mun HMS greiða um 40% en sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu 60%, sem skiptist í samræmi við íbúafjölda.

Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 og til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2107308

18

Tilboð í verkið "Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2021-2024"

Tilboð sem bárust í verkið „Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2021-2024“ voru lögð fram á fundi bæjarráðs 24. ágúst sl.

Bjartey ehf. kr. 64.627.200

Malbikunarstöðin Höfði hf. kr. 225.048.000

Kostnaðaráætlun kr. 75.900.000

Tilboðin hafa verið yfirfarin og uppfyllir tilboð lægstbjóðanda Bjargeyjar ehf. ekki skilmála útboðsins m.a. um ákvæði skilmála um jákvætt eigið fé. Tilboð Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. er langt umfram kostnaðaráætlun og telst óásættanlegt.

Bæjarráð hafnar framkomnum tilboðum og samþykkir að bjóða verkið út að nýju.

Málsnúmer 2105286

19

Bréf Sjúkratrygginga Íslands varðandi rekstur hjúkrunarheimilisins Ísafoldar, dags. 17.08.21.

Í bréfinu er tilkynnt að heilbrigðisráðuneytið f.h. ráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að semja við nýja aðila um rekstur hjúkrunarheimilisins Ísafoldar og að stefnt sé að semja við Vigdísarholt ehf.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2108641

20

Tilkynning frá menntamálaráðuneytinu varðandi skýrslu um styrkingu leikskólastigsins, dags. 23.08.21.

Lögð fram og vísað til kynningar í leikskólanefnd.

Málsnúmer 2108648

21

Bréf Garðasóknar varðandi málefni Garðakirkjugarðs, dags. 26.08.21.

Bæjarráð vísar bréfinu ásamt greinargerð til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

Fylgiskjöl