Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í hesthúsahverfinu á Kjóavöllum.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
25. (2032). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við gatnagerð í hesthúsahverfinu á Kjóavöllum.
Bjössi ehf. kr. 595.000.000
Óskatak ehf. kr. 487.411.273
Stéttafélagið ehf. kr. 568.397.865
Kostnaðaráætlun kr. 532.857.950
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Óskataks ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
03
20. (2027). fundur
Deildarstjóri umhverfis- og framkvæmda gerði grein fyrir útboðslýsingu vegna framkvæmda við gatnagerð í nýju hesthúsahverfi á Kjóavöllum en úthlutun á hluta lóðanna hefur þegar farið fram. Farið var yfir áætlaðan kostnað við gatnagerð og tekjur af gatnagerðargjöldum og byggingarréttargjöldum.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að auglýsa útboð á framkvæmdum við gatnagerð í nýju hesthúsahverfi á Kjóavöllum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
11. (889). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í hesthúsahverfi á Kjóavöllum. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2108229)
Bæjarráð Garðabæjar
05
32 (1990). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í í hesthúsahverfi á Kjóavöllum. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
10. fundur
Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir gerð gatna og lagna í Andvarahverfi og Rjúpnahlíðarhverfi á Kjóavöllum.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við gildandi deiliskipulag m.s.br. í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.