25. (2032). fundur
25. (2032). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
12.07.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varamaður
- Hlynur Elías Bæringsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2106536
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - Viðauki nr. 2.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2022 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Fjölskyldusvið:
Vegna hækkunar á töxtum NPA (notendastýrðar persónulegrar aðstoðar) þarf að hækka fjárframlög vegna einstaklinga sem eru með samning við Garðabæ um NPA. Ástæða hækkunar er vegna hækkana samkvæmt kjarasamningum.
Hækkunin er afturvirk og nemur 19 millj. kr.
NPA samningar 19.000.000 02530-4993
Húsnæðisstuðningur ? sérstakur húsnæðisstuðningur.
Á fundi bæjarráðs 28.6. sl. var samþykkt að hækka viðmið um hámark sérstaks húsnæðisstuðnings
Kostnaðarauki á árinu 2022 nemur um 3 m.kr.
Sérstakur húsnæðisstuðningur 3.000.000 02180-9113
Vinnutímastytting vaktavinnufólks
Í ljós hefur komið að vinnutímastytting vaktavinnufólks sem sinnir sólarhringsþjónustu er umtalsvert kostnaðarsamari en reiknað var með í fjárhagsáætlun. Hækka þarf fjárveitingu í fjárhagsáætlun um 25 m.kr. vegna þessa.
Hækkun á fjárveitingu er færð á þær stofnanir Garðabæjar sem sinna sólarhringsþjónustu, heimili fatlaðs fólks, þjónustuíbúðir að Arnarási og skammtímavistunina á Móaflöt.
Vaktavinna sólarhringsþjónustu 25.000.000 ýmsir bókhaldslyklar
Tækni- og umhverfissvið:
Fyrri hluti árs 2022 var veðurfarslega mjög óhagstæður varðandi snjómokstur og hálkuvarnir. Vegna þessa þarf að hækka fjárveitingu í fjárhagsáætlun um 85 m.kr.
Snjómokstur og hálkuvarnir 85.000.000 10610-4521
Samtals útgjaldaauki 132.000.000
Fjármögnun viðauka
Auknum útgjöldum mætt með varasjóði.
Varasjóður -132.000.000 31916-7179
Málsnúmer 2102132
02
Stekkjarflöt 25 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gabríelu Kristjánsdóttur leyfi til að byggja við og breyta innra skipulagi núverandi húss að Stekkjarflöt 25.
Málsnúmer 2207093
03
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi framboðsfrest til formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 05.07.22.
Í bréfinu er vakin athygli á nýjum reglum sem kveða á um að formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga verður nú kjörinn með beinni rafrænni kosningu en ekki á landsþingi eins og tíðkast hefur.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2207080
04
Bréf sýslumannsins á Suðurlandi varðandi beiðni um umsögn vegna umsóknar Eimverks ehf. um leyfi til sölu áfengis frá framleiðslustað, dags. 04.07.22.
Í bréfinu er farið fram á umsögn vegna umsóknar Eimverks ehf. um leyfi til sölu áfengis frá framleiðslustað að Lyngási 13.
Verið er að vinna að gagnaöflun og er afgreiðslu frestað að svo stöddu.
Málsnúmer 2207094
05
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu varðandi ársskýrslu umboðsmanns barna 2021, dags. 05.07.22.
Lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 2207095
06
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga varðandi áreiðanleikakönnun viðskiptamanna 2022, dags. 05.07.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2205120
07
Bréf mennta- og barnamálaráðuneytis varðandi styrk vegna tómstunda- og menntunarúrræða barna á flótta, dags. 05.07.22.
Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið hefur fallist á að veita Garðabæ styrk að fjárhæð kr. 3.300.000 vegna tómstunda- og menntunarúrræða barna á flótta.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2108229
08
Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í hesthúsahverfinu á Kjóavöllum.
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við gatnagerð í hesthúsahverfinu á Kjóavöllum.
Bjössi ehf. kr. 595.000.000
Óskatak ehf. kr. 487.411.273
Stéttafélagið ehf. kr. 568.397.865
Kostnaðaráætlun kr. 532.857.950
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Óskataks ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2207187
09
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi útboð vegna rannsóknarborhola í Bláfjöllum, dags. 07.07.22.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2204047
10
Opnun tilboða í byggingu dælustöðvar fyrir vatnsveitu.
Eftirfarandi tilboða barst í byggingu dælustöðvar fyrir vatnsveitu.
Langeldur ehf. kr. 123.470.000
Kostnaðaráætlun kr. 57.322.950
Bæjarráð hafnar tilboðinu með vísan til 2. mgr. 83. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.
Varðandi rökstuðning er bent á að umrætt tilboð er 215% af kostnaðaráætlun sem lá fyrir við opnun tilboða og 184% af uppfærðri kostnaðaráætlun.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að bjóða byggingu dælistöðvar út að nýju.