Bréf Sýslumannsins á Suðurlandi varðandi beiðni um umsögn vegna umsóknar Eimverks ehf. um leyfi til sölu áfengis frá framleiðslustað, dags. 04.07.22.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31. (2038). fundur
Umsókn Eimverks ehf., kt. 510811-0700, um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað að Lyngási 13, hefur verið til skoðunar samkvæmt 6. gr. a áfengislaga nr. 75/1998, sbr. lög nr. 35/2022 og 5. gr. reglugerðar nr. 800/2022.
Fyrir liggur að byggingarleyfi hefur verið endurnýjað og er starfsemin í samræmi við skipulagsskilmála. Heilbrigðiseftirlitið er að vinna að endurnýjun starfsleyfis fyrirtækisins en veitir jákvæða umsögn um umsóknina. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur gert úttekt á brunavörnum og veitt jákvæða umsögn um umsóknina.
Upplýsingar liggja fyrir um að afgreiðslutími verður frá kl. 10:00 ? 16:00 á virkum dögum.
Bæjarráð telur að umsóknin uppfylli að öllu leyti skilyrði ákvæða 6. gr. a áfengislaga nr. 75/1998, sbr. lög nr. 35/2022 og 5. gr. reglugerðar nr. 800/2022 og gerir því ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Bæjarráð Garðabæjar
02
30. (2037). fundur
Afgreiðslu frestað þar sem umsögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins liggur ekki fyrir í málinu.
Bæjarráð Garðabæjar
03
25. (2032). fundur
Í bréfinu er farið fram á umsögn vegna umsóknar Eimverks ehf. um leyfi til sölu áfengis frá framleiðslustað að Lyngási 13.
Verið er að vinna að gagnaöflun og er afgreiðslu frestað að svo stöddu.