30. (2037). fundur
30. (2037). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
30.08.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2208619
01
Árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2022.
Á fund bæjarráð mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir árshlutauppgjöri Garðabæjar fyrir tímabilið janúar - júní 2022.
Niðurstaða A og B - hluta fyrir tímabilið í þkr:
Rekstrartekjur 13.284.520
Rekstrargjöld 9.466.104
Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir 3.818.415
Afskriftir (659.879)
Rekstrarniðurstaða án fjármunat. og gjalda 3.158.537
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (996.168)
Rekstrarniðurstaða - jákvæð 2.162.368
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2206112
02
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi forsendur fjárhagsáætlana 2023-2026, dags. 23.08.22.
Málsnúmer 2202265
03
Haukanes 16 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Inga Jóelssyni, kt. 220178-5449, leyfi til að byggja við og breyta núverandi einbýlishúsi að Haukanesi 16.
Málsnúmer 2107441
04
Langalína 10 - 14 Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Skúla Ágústssyni, kt. 060957-4529, leyfi til að útbúa og innrétta lokað rými í kjallara fjölbýlishússins að Löngulínu 10-14.
Málsnúmer 2208156
05
Lindarstræti 1A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að byggja inntakshús fyrir snjóbræðslukerfi að Lindarstræti 1A.
Málsnúmer 2201564
06
Smáraflöt 12 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Guðna Ómarssyni, kt. 020576-4809, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Smáraflöt 12.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 2208637
07
Erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu um skipun starfshóps til að skoða og gera tillögur um nýtingu vindorku, dags. 23.08.22.
Lagt fram og vísað til kynningar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2208684
08
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi boð á viðburðinn "Aðlögun að breyttum heimi", dags. 22.08.22.
Málsnúmer 2109394
09
Bréf Mannvits varðandi sameiginlega svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 á Suðvesturlandi, dags. 14.01.22.
Bæjarráð samþykkir að fram fari kynning á málinu á næsta fundi bæjarráðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2207080
10
Bréf Sýslumannsins á Suðurlandi varðandi beiðni um umsögn vegna umsóknar Eimverks ehf. um leyfi til sölu áfengis frá framleiðslustað, dags. 04.07.22.
Afgreiðslu frestað þar sem umsögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins liggur ekki fyrir í málinu.
Málsnúmer 2208694
11
Endurskoðun á samþykktum um stjórn Garðabæjar.
Lögð fram drög að endurskoðuðum samþykktum um stjórn Garðabæjar.
Bæjarráð vísar endurskoðun á samþykktum um stjórn Garðabæjar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Málsnúmer 2208695
12
Endurskoðun siðareglna kjörinna fulltrúa hjá Garðabæ.
Lögð fram drög að endurskoðuðum siðarreglum kjörinna fulltrúa hjá Garðabæ.
Bæjarráð vísar endurskoðun á siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Garðabæ til fyrri umræðu í bæjarstjórn.