Beint í efni

Stekkjarflöt 25 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2102132

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

25. (2032). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gabríelu Kristjánsdóttur leyfi til að byggja við og breyta innra skipulagi núverandi húss að Stekkjarflöt 25.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

1. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

13. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun byggingarreits að götu. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu sem fer út fyrir byggingarreit lóðarinnar við Stekkjarflöt 25. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 20 og 22 og Stekkjarflatar 20,21,22 og 23. (Mál nr. 2102132)

Bæjarráð Garðabæjar

05

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu sem fer út fyrir byggingarreit lóðarinnar við Stekkjarflöt 25. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 20 og 22 og Stekkjarflatar 20,21,22 og 23.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

4. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

4. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir viðbyggingum við framhlið og bakhlið húss sem fara út fyrir byggingarreit.
Þar sem að gatan liggur í sveig við enda hennar skapast svigrúm að mati nefndarinnar fyrir hógværa viðbyggingu við framhlið.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar hennni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal íbúum Stekkjarflatar 20,21,22 og 23 og Smáraflatar 20 og 22.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

08

2. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við framhlið húss sem nær út fyrir byggingarreit.
Sækja þarf um breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits sem lögð verður fyrir skipulagsnefnd.