2. fundur
2. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
24.02.2021
Kl. 14:00 - 16:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna María Guðmundsdóttir
- Eysteinn Haraldsson
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2102205
01
Miðsvæði Álftanes - Breiðumýri - sameining lóða
Skipulagsstjóri leggur fram tillögu þess efnis að fjölbýlishúsalóðir og bílastæðis/bílageymslu lóðir við Lambamýri, Grásteinsmýri og Hestamýri sameinist í eina sameiginlega lóð. Átæðan er sú að með því móti verði hægara að skrá lóðirnar í þjóðskrá. Skoðun á tækni-og umhverfissviði leiðir í ljós að skynsamlegt sé að gera þessa breytingu.
Lóðirnar Lambamýri 1, 3 og 5 sameinast við bílageymslulóð og nefnist Lambamýri 1,3og 5. Lóðirnar Grásteinsmýri 1, 3 og 5 sameinast við bílageymslu/bílastæðislóð og nefnist Grásteinsmýri 1,3og 5. Lóðirnar Hestamýri 1, 3 og 5 sameinast við bílageymslu/bílastæðislóð og nefnist Hestamýri 1,3og 5.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Breiðumýrar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa og sveitarfélagsins er grenndarkynning felld niður sbr.4.mgr.44.gr.sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2102132
02
Stekkjarflöt 25 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við framhlið húss sem nær út fyrir byggingarreit.
Sækja þarf um breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits sem lögð verður fyrir skipulagsnefnd.
Málsnúmer 2101314
03
Goðatún 16 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Fyrirspyrjandi óskar eftir leiðbeiningu varðandi næstu skref ef núverandi garðskáli götumegin húss verði rifinn og varanleg viðbygging reist í hans stað. Nýtingarhlutfall hússins er í dag 0,34 en yrði 0,38 þegar viðbyggingin yrði reiknuð til nýtingarhlutfalls. Samkvæmt deiliskipulagi skal nýtingarhlutfall ekki vera hærra en 0,3.
Þar sem að umfang byggingarinnar eykst ekki meira við þessa breytingu en verið hefur undanfarna áratugi og tekið er fram í deiliskipulagi að ákvæði þess eigi einkum við ef hús er fjarlægð og ný byggð er það svar skipulasstjóra að hann lítur ekki svo á að ástæða sé til þess að sækja um deiliskiplagsbreytingu vegna þessarar breytingar á húsinu.
Málsnúmer 2009325
04
Tunguás 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu í samræmvi við 2.mgr.43.gr. og 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Engar athugasemdir bárust. Deiliskipulagsbreytingin skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2101283
05
Fluguvellir 1 - Hesthús viðbygging Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að reisa viðbyggingu við húsgafl í átt að næsta húsi.
Samkvæmt skilmálum 3.1.3. segir að byggingarreitur lóðarinnar getur orðið allt að 24 m langur sem jafngildir því að 4 metrar séu frá húsgafli að lóðarmörkum. Núverandi hús eru yfirleitt í 5 m fjarlægð frá lóðarmörkum.
Í hverfinu og í deiliskipulagi er fjarlægð milli húsgafla hvergi styttri en 8-10 metrar.
Skipulagsstjóri telur ekki æskilegt að bil á milli húsgafla verði þrengra en skipulag kveður á um og að breytingin yrði fordæmisgefandi fyrir allt hesthúsahverfið.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2101295
06
Espilundur 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn lóðarhafa um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækkar til austurs um 1,6 m og til suðurs um 3 m.
Skipulagstjóri vísar umsókninni til skipulagsnefndar.
Málsnúmer 2011516
07
Suðurhraun 2a - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Fyrir hönd lóðarhafa spyr arkitekt hvort mögulegt sé að leggja gangstétt á milli lóðarmarka og byggingarreits fyrir viðbyggingu. Samkvæmt fyrri fyrirspurn yrðu um 3 metrar frá byggingarreit að lóðarmörkum Suðurhrauns 4. Á þeirri hlið viðbyggingar yrðu gönguhurð/rýmingarleið en ekki vöruaðkoma.
Svar: Ekki er gerð athugasemd við útfærslu með þessum hætti. Sækja þarf um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns og henni þarf að fylgja samþykki annarra eigenda og/eða húsfundar að Suðurhrauni 2.
Málsnúmer 1902062
08
Víkurgata 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um breytinu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir útigeymslu utan byggingarreits og á bak við stoðvegg. Með vísan í aðrar sambærilegar umsóknir í Urriðaholti er tillagan metin sem óveruleg breyting deillskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan skal grenndarkynnt eigendum Víkurgötu 6, 8 10, 15 og 19.
Málsnúmer 2101445
09
Kinnargata 92 - A og B rými og bílakjallari - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn arkitekts fyrir hönd lóðarhafa þar sem spurt er um skilgreiningu A og B rýma annarsvegar og hinsvegar hvor hvort heimilað verði að stækka byggingarmagn niðurgrafinnar bílageymslu.
Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram en þar er atriðum varðandi A og B rými svarað og ekki er gerð athugasemd við stækkun niðurgrafinnar bílageymslu.
Sækja þarf um breytingu deiliskipulags þar sem fram kemur með hvaða hætti útfæra skal stækkun bílageymslu.