Beint í efni

Miðsvæði Álftanes - Breiðumýri - sameining lóða

Málsnúmer 2102205

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

4. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

2. fundur

Skipulagsstjóri leggur fram tillögu þess efnis að fjölbýlishúsalóðir og bílastæðis/bílageymslu lóðir við Lambamýri, Grásteinsmýri og Hestamýri sameinist í eina sameiginlega lóð. Átæðan er sú að með því móti verði hægara að skrá lóðirnar í þjóðskrá. Skoðun á tækni-og umhverfissviði leiðir í ljós að skynsamlegt sé að gera þessa breytingu.
Lóðirnar Lambamýri 1, 3 og 5 sameinast við bílageymslulóð og nefnist Lambamýri 1,3og 5. Lóðirnar Grásteinsmýri 1, 3 og 5 sameinast við bílageymslu/bílastæðislóð og nefnist Grásteinsmýri 1,3og 5. Lóðirnar Hestamýri 1, 3 og 5 sameinast við bílageymslu/bílastæðislóð og nefnist Hestamýri 1,3og 5.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Breiðumýrar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en lóðarhafa og sveitarfélagsins er grenndarkynning felld niður sbr.4.mgr.44.gr.sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.