Espilundur 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
27. (1985). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hermanni Erni Pálssyni, kt. 280582-2989, leyfi til að byggja við núverandi hús að Espilundi 3.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
5. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
5. (883). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lunda í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits lóðarinnar við Espilund 3. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Espilundar 1,2,4,5 og 6 og Víðilundar 2,4 og 6. (Mál nr. 2101295)
Bæjarráð Garðabæjar
05
10. (1968). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lunda í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits lóðarinnar við Espilund 3. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Espilundar 1,2,4,5 og 6 og Víðilundar 2,4 og 6.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
4. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit í samræmi við umsókn um byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Espilundar 1,2,4,5 og 6 og Víðilundar 2, 4 og 6.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
08
2. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækkar til austurs um 1,6 m og til suðurs um 3 m.
Skipulagstjóri vísar umsókninni til skipulagsnefndar.