27. (1985). fundur
27. (1985). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
20.07.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - varamaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
01
Espilundur 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hermanni Erni Pálssyni, kt. 280582-2989, leyfi til að byggja við núverandi hús að Espilundi 3.
02
Tilkynning Hafnarfjarðar um auglýsingu vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi - Breikkun Reykjanesbrautar.
Bæjarráð vísar málinu til skoðunar skipulagsstjóra og til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
03
Bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytisins varðandi styrk til framkvæmda við fráveitur, dags. 09.07.21.
Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið hefur samþykkt umsókn Garðabæjar um styrk til framkvæmda við fráveitur á árunum 2020-2021. Styrkfjárhæðin nemur 20% af staðfestum heildarkostnaði vegna framkvæmda á árunum 2020 og 2021.
Fylgiskjöl
04
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi útgáfu á skýrslu um stöðu barna og ungmenna í samgöngum, dags. 15.07.21.
Bæjarráð vísar skýrslunni til umfjöllunar skipulagsnefndar og ungmennaráðs.
05
Kæra Rafmagnsþjónustunnar vegna rammaútboðs - Þjónusta iðnaðarmanna - raflagnir.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
06
Opnun tilboða í þjónustu og ráðgjöf vegna úthlutunar lóðarréttinda og sölu byggingarrétta í Vetramýri.
Lögð fram fundargerð frá opnun tilboða í útboði á vegum Garðabæjar - „Þjónusta og ráðgjöf vegna úthlutunar lóðarréttinda og sölu byggingarrétta í Vetrarmýri.
Allir þátttakendur sem valdir voru í forvali lögðu fram tilboð.
Íslandsbanki - Söluþóknun 1,0%
FS-Torg - Söluþóknun 1,49%
Kvika banki - Söluþóknun 2,45%
Bæjarráð samþykkir tilboð lægstbjóðanda Íslandsbanka og felur bæjarstjóra að tilkynna þátttakendum um val á tilboði í síðasta lagi 22. júlí nk. í samræmi við útboðsskilmála.
Fylgiskjöl
07
Tillaga umhverfisnefndar um snyrtilegt umhverfi 2021.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi árið 2021.
Fyrirhugað er að veita viðkomandi aðilum viðurkenningar miðvikudaginn 25. ágúst nk. kl. 17:00.
08
Umsóknir um rekstur samkomuhússins á Garðaholti.
Garðabær auglýsti 21. maí 2021 eftir rekstraraðila til að annast rekstur á veislusalnum í samkomuhúsinu á Garðaholt.
Umsóknir bárust frá eftirfarandi aðilum:
Stjörnukonur.
Anna Jóhannsdóttir og Svavar Ásbjörnsson.
Óli & Co ehf.
P11 ehf.
Lovísa V. Bryngeirsdóttir
Jóhanna Sigmundsdóttir
Lagt fram minnisblað með samantekt á umsóknum.
Allir umsækjendur voru boðaðir í viðtal og gefinn kostur á að gera nánari grein fyrir hugmyndum sínum um rekstur og starfsemi á Garðaholti.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri leiti samninga við Óla & Co ehf. um rekstur hússins til tveggja ára.
09
Tillaga um hugmyndasamkeppni að nafni fyrir fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri.
Bæjarráð samþykkir að efnt verði til opinnar samkeppni á vef Garðabæjar um nafn á fjölnota íþróttahúsinu í Vetrarmýri.