Beint í efni

Svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans vegna úrskurðar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 25/2021.

Málsnúmer 2107183

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

48. (2006). fundur

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

44. (2002). fundur

Lagður fram.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að láta undirbúa nýtt útboð vegna þjónustu rafvirkja og útboð á annarri þjónustu iðnaðarmanna.

Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.

1. Hversu mikinn kostnað hefur Garðabær lagt í vegna kaupa á lögfræðiþjónustu og þjónustu verkfræðistofa vegna rammaútboðs á vinnu iðnaðarmanna?

2. Líkt og fram kemur í gögnum málsins hefur bærinn notið aðstoðar verkfræðistofu við undirbúning rammaútboðs og lögfræðistofu. Hversu mikla skaðabótaábyrgð bera þeir aðilar í þessum úrskurði?

3. Hvers vegna var ekki gengið til samninga við lægstbjóðendur í stað þess að gera Garðabæ skaðabótaskyldan líkt og kemur fram í úrskurði kærunefndar og hver tók þá ákvörðun?

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

34. (1992). fundur

Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 13. júlí 2021 voru lögð fram tilboð í þjónustu rafvirkja. Einn bjóðenda kærði útboðið og hefur af þeirri ástæðu ekki verið tekin afstaða til tilboða. Kæran er enn til meðferðar hjá kærunefnd útboðsmála.

Gildistími tilboða er runnin út og ekki hefur verið leitað eftir framlengingu á gildistíma tilboða sem er háð því að fyrir liggi samþykki allra bjóðenda.

Útboðið telst því fallið niður og samþykkir bæjarráð að þjónusta rafvirkja verði boðin út að nýju.

Bæjarráð Garðabæjar

04

27. (1985). fundur

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.