Beint í efni

44. (2002). fundur

16.11.2021
Bæjarráð Garðabæjar

44. (2002). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

16.11.2021

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - varamaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2111236

01

Auglýsing um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvörðunartöku við stjórn sveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að heimilað verða að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 2 mgr. 19. gr. sveitarstjórnlaga um framkvæmd fjarfunda.

Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. c. liður 8. gr. auglýsingar um leiðbeiningar um ritun fundargerða nr. 1181/2021, sbr. 7. gr. auglýsingar um framkvæmd fjarfunda í sveitarstjórn nr. 1182/2021

Samþykkt þessi er gerð með vísan til auglýsingar um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga nr. 1273/2021.

Málsnúmer 2106536

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 (2022-2025).

Bæjarstjóri fór yfir umræðu á samtalsfundi bæjarfulltrúa og gerði grein fyrir hugmyndum að breytingum milli umræðna.

Minnisblað um drög að breytingum milli umræðna verður sent bæjarfulltrúum.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 2 og 3.

Málsnúmer 2006130

03

Fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2021 - Viðauki 5.

Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun 2021 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 5

Á fundi bæjarráðs þann 6. júlí sl. var samþykkt hækkun á gjaldskrá fyrir skólamat með gjaldskrárhækkuninni hækkar niðurgreiðsla bæjarins með skólamat um 4 m.kr.

Skólamatur grunnskóla 4.000.000 04030-9177



Nýr leikskóli í rekstri Garðabæjar frá haustmánuðum 2021. Laun, leiga og annar rekstrarkostnaður

Mánahvoll 44.000.000 04122-

Fleiri börn hjá dagforeldrum en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir og hækkun á framlögum til dagforeldra sbr. samþykkt bæjarráðs 12.10. sl.

Dagforeldrar 9.000.000 04170-9173

Vegna vinnu við stafræna þróun á vegum Sambands ísl. sveitarfélaga og Garðabæjar sbr. kynningar í bæjarráði, þarf að bæta við fjárhagsáætlun 12 m.kr.

Stafræn þróun 12.000.000 21400-

Vegna sumarátaksvinnu ungs fólks þarf að bæta við fjárhagsáætlun ársins þar sem fjöldi ungmenna varð meiri en áætlun gerði ráð fyrir, allir fengu starf, sbr. kynning mannauðsstjóra í bæjarráði.

Sumarátaksvinna ungs fólks 96.000.000 11330-

Sumarátak stutt með þátttöku Vinnumálastofnunar 6.000.000 11340-

Fjármögnun viðauka

Viðauka er mætt með hækkun á staðgreiðslu útsvars

Staðgreiðsla 171.000.000 00010-0021

Málsnúmer 2109078

04

Eskiás 2 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Framkvæmdafélaginu Eskiási hf., kt. 501286-1419, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 43 íbúðum við Eskiás 2.

Málsnúmer 2111138

05

Erindi Hestamannafélagsins Sóta varðandi niðurfellingu fasteignagjalda árið 2021.

Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Sóta styrk að fjárhæð kr. 111.134 til greiðslu fasteignagjalda árið 2021.

Málsnúmer 2103143

06

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið, dags. 08.11.21.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti aðild Garðabæjar að samstarfsvettvangi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og atvinnulífsins um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið. Samstarfssamningur skal lagður fram til staðfestingar og samþykktar í bæjarstjórn.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2111157

07

Bréf Stígamóta um samstarf og styrk til starfseminnar, dags. 03.11.21.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.

Málsnúmer 2111199

08

Bréf UMF Stjörnunnar varðandi Þorrablót 2022, dags. 10.11.21.

Í bréfinu er farið fram á leyfi til að halda þorrablót Stjörnunnar í íþróttamiðstöðinni Mýrinni á bóndadag 21. janúar 2022. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 2110145

09

Starfsemi leikskóla Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka málið upp á vettvangi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga til að stuðla að almennri umræðu um málefni leikskóla.

Málsnúmer 2111169

10

Erindi RH varðandi reglur um afslátt af fasteignagjöldum til eldri borgara og öryrkja, dags. 09.11.21.

Bæjarráð vísar erindinu til nánari skoðunar við ákvörðun á viðmiðunarfjárhæðum vegna lækkunar á fasteignaskatti og holræsagjaldi sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða árið 2022.

Málsnúmer 2111136

11

Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi nýja mannvirkjaskrá, dags. 05.11.21.

Lögð fram til upplýsingar.

Málsnúmer 2107183

12

Úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 25/2021: Rafmagnsþjónustan ehf. gegn Garðabæ.

Lagður fram.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að láta undirbúa nýtt útboð vegna þjónustu rafvirkja og útboð á annarri þjónustu iðnaðarmanna.

Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.

1. Hversu mikinn kostnað hefur Garðabær lagt í vegna kaupa á lögfræðiþjónustu og þjónustu verkfræðistofa vegna rammaútboðs á vinnu iðnaðarmanna?

2. Líkt og fram kemur í gögnum málsins hefur bærinn notið aðstoðar verkfræðistofu við undirbúning rammaútboðs og lögfræðistofu. Hversu mikla skaðabótaábyrgð bera þeir aðilar í þessum úrskurði?

3. Hvers vegna var ekki gengið til samninga við lægstbjóðendur í stað þess að gera Garðabæ skaðabótaskyldan líkt og kemur fram í úrskurði kærunefndar og hver tók þá ákvörðun?

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Fylgiskjöl