Auglýsing um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvörðunartöku við stjórn sveitarfélaga.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
16. (894). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga.
"Bæjarstjórn samþykkir að heimilað verði að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 2 mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga um framkvæmd fjarfunda.
Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. c. liður 8. gr. auglýsingar um leiðbeiningar um ritun fundargerða nr. 1181/2021, sbr. 7. gr. auglýsingar um framkvæmd fjarfunda í sveitarstjórn nr. 1182/2021
Samþykkt þessi er gerð með vísan til auglýsingar um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga nr. 1273/2021."
Tillagan samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
02
44. (2002). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja að heimilað verða að nota fjarfundarbúnað á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins og víkja frá skilyrði í 2 mgr. 19. gr. sveitarstjórnlaga um framkvæmd fjarfunda.
Bæjarstjórn samþykkir að fundargerðir verði lesnar upp í lok fundar og samþykktar. Fundargerðir skulu sendar fundarmönnum með tölvupósti og undirritaðar með rafrænum undirskriftum, sbr. c. liður 8. gr. auglýsingar um leiðbeiningar um ritun fundargerða nr. 1181/2021, sbr. 7. gr. auglýsingar um framkvæmd fjarfunda í sveitarstjórn nr. 1182/2021
Samþykkt þessi er gerð með vísan til auglýsingar um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélaga nr. 1273/2021.