Beint í efni

Kynning verkefnastjóra á stöðu og vinnu við áfangastaða- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Málsnúmer 2103143

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

13. (2020). fundur

Á fund bæjarráð kom Björn H. Reynisson, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og kynnti undirbúning og mótun að stofnun áfangastaða- og markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarfulltrúi Björg Fenger, var á fjarfundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Sunna G. Sigurðardóttir, sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrálið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

18. (896). fundur

Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samstarfssamning aðildarsveitarfélaga Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið og felur Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir að tilnefna Stellu Stefánsdóttur, varabæjarfulltrúa og Ingvar Arnarson bæjarfulltrúa sem fulltrúa í stefnuráð.

Bæjarráð Garðabæjar

03

48. (2006). fundur

Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

44. (2002). fundur

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti aðild Garðabæjar að samstarfsvettvangi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og atvinnulífsins um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið. Samstarfssamningur skal lagður fram til staðfestingar og samþykktar í bæjarstjórn.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

05

40. (1998). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Inga Hlín Pálsdóttir, verkefnastjóri og kynnti tillögur um fjármögnun og tekjumódel með hagaðilum varðandi stofnun áfangastaða- og markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

Næstu skref eru að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taki afstöðu til verkefnisins stofnunar og fjármögnunar.

Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Harpa Þorsteinsdóttir og Jóna Sæmundsdóttir, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagkrárlið.

Bæjarráð Garðabæjar

06

9. (1967). fundur

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Huldu Hauksdóttir, upplýsingastjóra, fulltrúa Garðabæjar í ráðgjafahóp um áfangastaða- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið.

Fylgiskjöl