9. (1967). fundur
9. (1967). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
09.03.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Óleyfisbúseta og fjöldaskráningar í íbúðarhúsnæði - kynning á niðurstöðum vinnuhóps.
Á fund bæjarráðs kom Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og kynnti niðurstöður vinnuhóps varðandi óleyfisbúsetu og fjöldaskráningar í íbúðarhúsnæði.
Gerði Jón Viðar grein fyrir að óleyfisbúseta væri skilgreind búseta í húsnæði sem er skipulagt undir atvinnustarfsemi. Fram kom hjá Jóni Viðari að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur skipað starfshóps sem vinnur að gerð tillagna um úrbætur að fengnum niðurstöðum rannsóknar á bruna við Bræðraborgarstíg og vinnuhóps um óleyfisbúsetu og fjöldaskráningar í íbúðarhúsnæði.
Fyrir liggja tillögur í 11 liðum um úrbætur í þessu sviði þar sem m.a. er lagt til að endurskoðaðar verði heimildir til fjöldaskráninga lögheimilis í íbúðarhúsnæði með það í huga að setja takmörk á slíkar skráningar, að lögfest verði skráningarskylda leigusamninga í húsnæðisgrunn Húsnæðis og mannvirkjastofnunar og að leitað verði leiða til þess að ná fram með einhverjum hætti skráningu á búsetu einstaklinga í óleyfisíbúðum.
Fylgiskjöl
02
Upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um ofgreiðslu staðgreiðslu 2020/2021.
Lagðar fram upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðuneytinu um ofgreiðslu staðgreiðslu til sveitarfélaga. Ofgreiðsla verður dregin frá greiðslum til sveitarfélaga með þremur afborgunum í uppgjörum í mars, apríl og maí. Ofgreiðsla staðgreiðslu í tilviki Garðabæjar er um 230,0 mkr.
Lagt fram yfirlit yfir staðgreiðslu útsvars tímabilið janúar - febrúar 2021.
03
Sveinskotsvör 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vigdísi Björk Segatta, kt. 210386-2899, leyfi til að byggja einbýlishús að Sveinskotsvör 8.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögur að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs og tillögu að deiliskipulagi.
Lögð fram.
05
Tillaga um framlengingu á umsóknarfresti vegna íþrótta- og tómstundastyrkja.
Bæjarráð samþykkir tillögu um framlengingu umsóknarfrests til 15. apríl 2021.
06
Áfrýjunarstefna til Landsréttar á dómi Héraðsdóms Reykjaness vegna kröfu ógildingar á úrskurði yfirfasteignamatsnefndar.
Lögð fram.
Bæjarráð felur Andra Árnasyni, lögmanni að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
07
Bréf Jafnréttisstofu og Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög, dags. 02.03.21
08
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi tilnefningu á fulltrúum í stafrænan samráðshóp, dags. 04.03.21.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna bæjarfulltrúana, Almar Guðmundsson og Ingvar Arnarson, fulltrúa Garðabæjar í stafrænan samráðshóp SSH.
Fylgiskjöl
09
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um tilnefningu á fulltrúa í ráðgjafahóp um áfangastaða- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið, 05.03.21.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Huldu Hauksdóttir, upplýsingastjóra, fulltrúa Garðabæjar í ráðgjafahóp um áfangastaða- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið.
Fylgiskjöl
10
Bréf Knattspyrnufélagsins Bjarnastaða (KFB) varðandi styrkbeiðni vegna reksturs meistaraflokks, dags. 03.03.21..
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs.
Fylgiskjöl
11
Bréf Brynju leigufélags varðandi umsókn um stofnframlag vegna ársins 2021, dags. 22.02.21.
Bæjarráð tekur jákvætt í umsóknina og vísar henni til nánari skoðunar bæjarstjóra.
12
Bréf Nýsköpunarvikunnar ehf. um árlegt framlag vegna Nýsköpunarvikunnar, dags 05.03.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra og til umfjöllunar hjá stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfðuðborgarsvæðinu.
Fylgiskjöl
13
Bréf Gunnars Jónssonar varðandi gatnamál að Hleinahverfi, dags. 02.03.21.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.
Fylgiskjöl
15
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7 1998 (menntun og eftirlit), 562. mál., dags. 04.03.21
Lagt fram.
16
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5 1998, með síðari breytingum (kosningaaldur), 272. mál., dags. 02.03.21.
Lagt fram.
17
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um Garðahverfi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.