Óleyfisbúseta og fjöldaskráningar í íbúðarhúsnæði - kynning á niðurstöðum vinnuhóps.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
9. (1967). fundur
Á fund bæjarráðs kom Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og kynnti niðurstöður vinnuhóps varðandi óleyfisbúsetu og fjöldaskráningar í íbúðarhúsnæði.
Gerði Jón Viðar grein fyrir að óleyfisbúseta væri skilgreind búseta í húsnæði sem er skipulagt undir atvinnustarfsemi. Fram kom hjá Jóni Viðari að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur skipað starfshóps sem vinnur að gerð tillagna um úrbætur að fengnum niðurstöðum rannsóknar á bruna við Bræðraborgarstíg og vinnuhóps um óleyfisbúsetu og fjöldaskráningar í íbúðarhúsnæði.
Fyrir liggja tillögur í 11 liðum um úrbætur í þessu sviði þar sem m.a. er lagt til að endurskoðaðar verði heimildir til fjöldaskráninga lögheimilis í íbúðarhúsnæði með það í huga að setja takmörk á slíkar skráningar, að lögfest verði skráningarskylda leigusamninga í húsnæðisgrunn Húsnæðis og mannvirkjastofnunar og að leitað verði leiða til þess að ná fram með einhverjum hætti skráningu á búsetu einstaklinga í óleyfisíbúðum.