Beint í efni

Tilkynning félagsmálaráðuneytis um framlengingu á umsóknarfresti vegna íþrótta- og tómstundastyrkja til lágtekjuheimila vegna COVID19, dags. 14.04.21.

Málsnúmer 2009193

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

14. (1972). fundur

Lögð fram tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu um framlengingu á umsóknarfresti til 31. júlí 2021 og rýmkun á skilyrðum fyrir veitingu styrkja.

Bæjarráð samþykkir að uppfæra reglur Garðabæjar m.t.t. framlengingar á umsóknarfresti.

Bæjarráð Garðabæjar

02

9. (1967). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um framlengingu umsóknarfrests til 15. apríl 2021.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

24. fundur

Reglur Garðabæjar hafa verið samþykktar og eru aðgengilegar á vefsíðu bæjarins.

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

11. fundur

Lagðar eru fyrir fjölskylduráð til kynningar Reglur Garðabæjar um úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020-2021.

Stjórnvöld samþykktu fyrr á árinu frumvarp til fjáraukalaga sem m.a. fól í sér að verja 600 mkr. í styrki til tekjulágra heimila þannig að öll börn geti óháð efnahag stundað íþróttir og aðrar tómstundir. Samþykktin er hluti af umfangsmiklum aðgerðum og viðbrögðum stjórnvalda til að mæta efnahagslegum afleiðingum af völdum COVID-19 heimsfaraldursins. Í samþykktinni kemur fram að gert sé ráð fyrir að framkvæmdin verði á hendi sveitarfélaga og að samráð skuli haft við fulltrúafélagsþjónustu, íþróttafélaga og aðra þá aðila sem málið varðar um ráðstöfun fjármagnsins.
Fram hafa komið ólík sjónarmið um framkvæmd úthlutunar fjármagnsins. Til að gæta jafnræðis gagnvart fjölskyldum telur félagsmálaráðuneytið mikilvægt að settar verði reglur um framkvæmd úthlutunar.

Reglur þessar eru gerðar með hliðsjón af fyrirmynd sem ráðuneytið sendi sveitarfélögum, með nokkrum breytingum, einkum er varðar 4. gr. reglnanna um málsmeðferð. Umsókn er afgreidd á bæjarskrifstofum Garðabæjar. Ef umsókn er hafnað hefur umsækjandi rétt á að fara fram á að fjölskylduráð Garðabæjar fjalli um umsóknina. Fjölskylduráð skal fjalla um umsókn og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er. Ákvörðun fjölskylduráðs er hægt að skjóta til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Reglurnar voru lagðar fyrir bæjarráð 17. nóvember sem samþykkti þær og tóku þær þegar gildi.

Tekið fyrir mál nr. 2009193. Fyrir fundinum liggja reglur Garðabæjar um úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020-2021 sem bæjarráð samþykkti á fundi sínum 17. nóvember 2020. Fjölskylduráð fjallar um reglurnar og mun fjalla um þau ágreiningsmál sem lögð eru fyrir ráðið í samræmi við 4. gr. reglnanna um málsmeðferð.

Bæjarráð Garðabæjar

05

45. (1953). fundur

Á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið voru Sunna G. Sigurðardóttir, verkefnastjóri og Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur. Um er að ræða styrki sem ríkið úthlutar og fjármagnar en sveitarfélög sjá um framkvæmdina og annast greiðslur til viðkomandi aðila.

Gerðu þær nánari grein fyrir helstu skilyrðum fyrir úthlutun styrks og hvernig staðið verði kynningu málsins.

Bæjarráð samþykkir reglur Garðabæjar um úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn.

Fylgiskjöl