14. (1972). fundur
14. (1972). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
20.04.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2101090
01
Kinnargata 47 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Urriðaholtsstræti 28 ehf., kt. 620217-0180, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 13 íbúðum að Kinnargötu 47.
Málsnúmer 2104131
02
Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi vöktun á loftbornum flúori í gróðri.
Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um að nauðsynlegt sé við endurútgáfu á starfsleyfi fyrir Álverið í Straumsvík að bæta vöktunaráætlun vegna flúormælinga í gróðri fyrir svæðið í heild og þar með talið svæðið á Garðholti.
Málsnúmer 2103597
03
Opnun tilboða í eftirlit með framkvæmdum við byggingu skólpdælustöðvar.
Eftirfarandi tilboð bárust í eftirlit með framkvæmdum við byggingu skólpdælustöðvar.
VSÓ - Ráðgjöf ehf. kr. 18.339.840
Hnit verkfræðistofa hf. kr. 16.901.200
AVR ehf. kr. 14.250.080
Strendingur ehf. kr. 16.920.000
Efla verkfræðistofa hf. kr. 17.252.920
Kostnaðaráætlun kr. 17.520.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði AVR ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun
Málsnúmer 2103518
04
Opnun tilboða í veitutengingar að fjölnota iþróttahúsi.
Eftirfarandi tilboð bárust í veitutengingar að fjölnota íþróttahúsi.
Urð og Grjót ehf. kr. 63.303.900
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 46.330.000
Klapparverk ehf. kr. 55.878.500
Hellulist ehf. kr. 70.464.500
Grafa og Grjót ehf. kr. 47.913.300
Alma Verk ehf. kr. 68.426.600
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Loftorku Reykjavík ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun
Málsnúmer 2005266
05
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi upplýsingar um fjármál sveitarfélaga, dags. 13.04.21.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu og veita umbeðnar upplýsingar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2104195
06
Tillaga leikskólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla 2021.
Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun styrkja úr þróunarsjóði leikskóla 2020. Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 4.500.000 úr sjóðnum til 6 verkefna. Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð leikskóla.
Málsnúmer 2104240
07
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um endurskoðaða landsskipulagsstefnu 2015-2026, 705. mál, dags. 15.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104242
08
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru Íslands, 707. mál, dags. 15.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104245
09
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald, 708. mál, dags. 15.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104241
10
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48 2011 (málsmeðferð virkjunarkosta í vindorku), 709. mál, dags. 15.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104246
11
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, 712. mál, dags. 15.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104216
12
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur (nikótínvörur), 713. mál, dags. 15.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104243
13
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs), 715. mál, dags. 15.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104244
14
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um grunnskóla og framhaldsskóla (fagráð eineltismála), 716. mál, dags. 15.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2104191
15
Leikskólinn Sunnuhvoll - stækkun leikskóla og fjölgun leikskólarýma.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu innritunar barna í leikskóla og kom fram að gert er ráð fyrir að öll börn fædd árið 2020 fái dvöl á leikskóla á árinu 2021.
Bæjarverkfræðingur gerð grein fyrir undirbúningi að þarfagreiningu vegna kaupa á lausum kennslustofum sem staðsettar verða við Leikskólann Sunnuhvol. Hugmyndir eru um að byrja með fjórar deildir með möguleika á stækkun í sex deildir. Þá hafa einnig verið kannaðir möguleikar á að finna annað húsnæði með það huga að nýta þar aðstöðu til bráðabirgða þar til nýr leikskóli tekur til starfa í Urriðaholti.
Ingvar Arnarson, lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn fagnar því að það eigi að bregðast við skorti á leikskólaplássum. Þegar okkur var ljóst að það yrði skortur á leikskólaplássum lögðum við til í haust 2020 að gerð yrði áætlun um uppbyggingu leikskóla. Við viljum gjarnan að samhliða þessu að byrjað verði að hanna og byggja leikskóla í þeim hverfum sem eru á leið í uppbyggingu t.d. í Hnoðraholti.“
Áslaug Hulda Jónsdóttir, lagði fram eftirfarandi bókun:
„Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var sl. fimmtudag hélt oddviti Garðabæjarlistans, Sara Dögg Svanhildardóttir, því fram að það vanti 300 rými fyrir leikskólabörn í Garðabæ á þessu ári og að staðan væri alvarleg. Hér leyfir bæjarfulltrúi sér að fara með rangfærslur úr ræðustól á fundi bæjarstjórnar sem streymt er beint á vef Garðabæjar. Við innritun leikskólabarna sem fædd eru árið 2020 kom í ljós að árgangurinn var mun fjölmennari en fyrri árgangar. Í desember á síðasta ári var því strax hafin vinna til að fjölga leikskólaplássum í sveitarfélaginu m.a. með því að kanna möguleika á nýtingu á húsnæði til bráðabirgða og með því að taka í notkun lausar kennslustofur. Þess má einnig geta að hönnunarsamkeppni um nýjan leikskóla í Urriðaholti var sett af stað á síðasta ári.
Málflutningur bæjarfulltrúans um innritunarvanda eða ,,alvarlega stöðu" er því ekki bara ómálefnalegur heldur einfaldlega rangur og fellur ekki undir góða og vandaða starfshætti. Fjölgun leikskólabarna í Garðabæ er jákvæð þróun og verkefni sem verið er að leysa og ekkert sem bendir til annars en að börn fædd árið 2020 komist inn í leikskóla í Garðabæ á þessu ári.“
Málsnúmer 2104252
16
Tilkynning frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um stefnu um stafræna þjónustu stjórnvalda í samráðsgátt, dags. 16.04.21.
Lagt fram.
Málsnúmer 2009193
17
Tilkynning félagsmálaráðuneytis um framlengingu á umsóknarfresti vegna íþrótta- og tómstundastyrkja til lágtekjuheimila vegna COVID19, dags. 14.04.21.
Lögð fram tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu um framlengingu á umsóknarfresti til 31. júlí 2021 og rýmkun á skilyrðum fyrir veitingu styrkja.
Bæjarráð samþykkir að uppfæra reglur Garðabæjar m.t.t. framlengingar á umsóknarfresti.