Beint í efni

Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi vöktun á loftbornum flúori í gróðri.

Málsnúmer 2104131

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

14. (1972). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um að nauðsynlegt sé við endurútgáfu á starfsleyfi fyrir Álverið í Straumsvík að bæta vöktunaráætlun vegna flúormælinga í gróðri fyrir svæðið í heild og þar með talið svæðið á Garðholti.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

31. fundur

Sigrún Hrönn Halldórsdóttir kynnti niðurstöður meistararannsókn sinnar; Vöktun á loftbornum flúor í gróðri ? Samantekt á niðurstöðum flúormælinga í gróðri umhverfis álverið í Straumsvík frá 1968 til 2017.

Sigrún Hrönn Halldórsdóttir er líffræðingur frá Háskóla Íslands. Hún starfaði hjá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogs og aflaði sér réttinda sem heilbrigðisfulltrúi. Hún lauk meistaraprófi í Umhverfisfræðum frá Háskóla Íslands árið 2019
Sigrún Hrönn Halldórsdóttir starfar sem sérfræðingur á Matvælastofnun.

Umhverfisnefnd telur nauðsynlegt að bæta vöktunaráætlun frá Álverinu fyrir svæðið í heild við endurútgáfu starfsleyfis fyrir álverið í Straumsvík. Mikilvægt er að fá loftgæðamæli á svæðið og samráð verði haft við heilbrigðiseftirlitið.

Fylgiskjöl