Hönnun - Útboð - Veitutengingar að fjölnota íþróttahúsi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (887). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir veitutengingar að fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2103518)
Bæjarráð Garðabæjar
02
20. (1978). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir veitutengingar að fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir veitutengingar að Íþróttahúsi í Vetrarmýri (Vífilshöll).
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir jarðvinu, stíga og veitulagnir í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og framlagða verklýsingu.
Bæjarráð Garðabæjar
04
14. (1972). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í veitutengingar að fjölnota íþróttahúsi.
Urð og Grjót ehf. kr. 63.303.900
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 46.330.000
Klapparverk ehf. kr. 55.878.500
Hellulist ehf. kr. 70.464.500
Grafa og Grjót ehf. kr. 47.913.300
Alma Verk ehf. kr. 68.426.600
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Loftorku Reykjavík ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun