7. fundur
7. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
27.05.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Almennar fyrirspurnir í skipulagsnefnd 2021
Guðbjörg Brá Gísladóttir deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við stígagerð í Garðabæ.
Skipulagsnefnd beinir því til tækni-og umhverfissviðs að hugað verði sem fyrst að greiðri og öruggri göngutengingu milli nýrra undirganga undir Hafnarfjarðarveg meðfram Hraunsholtslæk að Sjálandsskóla.
02
Urriðaholtsstræti 9 - deiliskipulagsbreyting - Aðal og deiliskipulagsbreyting
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir hjá Alta ehf og Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf kynntu tillögu að skipulagslýsingu á breytingu aðalskipulags og deiliskipulags sem nær til Urriðaholts Norðurhluta 4. Skipulagsmótunin hafi það að markmiði að lóðin Urriðaholtsstræti 9 breytist úr atvinnulóð í lóð fyrir fjölbýlishús sem verði ætlað fyrir aldurshópinn 50 plús. Samkvæmt drögum að tillögu er gert ráð fyrir 70-80 íbúðum í 4 stakstæðum húsum sem yrðu tengd saman á jarðhæð.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1.mgr.30.gr. og 1.mgr.40..gr.skipulagslaga nr.123/2010. Hún skal auglýst almenningi og send Skipulagsstofnun til athugunar og umsagnaraðilum til umsagnar.
03
Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.
Drífa Árnadóttir hjá Alta kynnti úrvinnslu á innsendum ábendingum sem borist hafa í forkynningu á tillögu að breytingum á deiliskipulagi Garðahverfis. Farið var yfir þær forsendur og markmið sem lágu til grundvallar við mótun deiliskipulagsins.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá deiliskipulagsráðgjafa og skipulagssstjóra.
Baldur Ó.Svavarsson fulltrúi G-listans lagði fram eftirfarandi bókun:
"Það er ekki að undra að íbúar hvái yfir skilmálum þessa furðu skipulagsáforma og sendi inn athugasemdir hver á fætur öðrum - enda með miklum fortíðar ólíkindum.
Framkomnar ábendingar við byggingaskilmálum skipulagsins eru nákvæmlega þær sem undirritaður hefur varað við og staðhæft að kæmu fram.
Jafnframt staðhæfði undirritaður að meirihlutinn myndi gefa eftir og víkja frá þessum skilmálum.
Ef svo fer, þá stendur ekki steinn yfir steini yfir þessum draumkenndu áformum.
Hér er ekki bara fórnað milljörðum af möglegum tekjustofni okkar bæjarbúa, heldur og frábæru 70 hektara framtíðarbyggingarlandi fyrir hundruðir bæjarbúa, á einum besta stað á öllu höfuðborgarsvæðinu. Fórnað fyrir óræða draumsýn sem er að breytast í andhverfu sína.
Hefst nú væntanlega seinna tímabil þessa furðu; nefnilega lóðabraskið.
Allt í boði meirihlutans! "
Sigurður Guðmundsson lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta skipulagsnefndar:
"Garðahverfið var deiliskipulagt árið 2013 í heild sinni og er þar um að ræða 79 hektara af u.þ.b. 420 hekturum Garðaholts. Samkvæmt Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 hefur Garðahverfið minjaverndarsjónarmið að leiðarljósi og er skilgreint sem landbúnaðarsvæði.
Áhersla er á menningar, náttúruminjar og einstakt búsetulandslag sem varðveist hefur og að gera svæðið aðgengilegt til útivistar og náttúruskoðunar. Garðahverfið nýtur auk þess verndar frá árinu 2017 samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð."
04
Lambhagi 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem m.a. gerir ráð fyrir breytingum á þaki og skyggni yfir inngangi.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Lambhaga nr.8,10 og 11 sem og Búðarflatar nr.1.
05
Fyrirspurn. Lyngás 13 og 15. Breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda
Lagt fram erindi frá EON arkitektum fyrir hönd lóðarhafa Lyngás 13 og 15 dags 10.janúar 2021 og 6.apríl 2021. Skipulagsnefnd vísar erindum lóðarhafa til úrvinnslu við mótun tillögu að rammahluta aðalskipulags fyrir Lyngássvæði og Hafnarfjarðarveg sem er í undirbúningi og mun kalla á tillögur að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda.
06
Eskiás, br á dsk Ása og Grunda
Lögð fram tillaga að breytingi deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóða við Eskiás að lokinni auglýsingu. Athugasemd hefur borist frá lóðarhöfum Lyngáss 13 og 15. Tillögu og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.
07
Blikanes 14
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit fyrir bílgeymslu og anddyri í sömu hæð og neðri hæð húss. Bílgeymslan nær 5,35 m í átt að götu. Stækkun byggingarreits verður því um 35,0 m2 að flatarmáli. Tillagan gerir ráð fyrir byggingareit sem er 1,15 m nær framhlið húss en fyrri tillögur, ekki er gert ráð fyrir þaksvölum ofan á bílageymslu eins og fyrri tillögur.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna öllum eigendum lóða við Blikanes sem og Tjaldaness 11 og 13.
Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.
08
Kornakur 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að einbýlishúsi sem m.a. gerir ráð fyrir því að kjallari verði undir aðalgólfi húss.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akrahverfis þar sem að deiliskipulag heimilar aðeins einnar og hálfrar hæðar einbýlishús eða kjallara þar sem að landhalli gefur tilefni til. Hæðarmunur á lóðarmörkum að neðanverðu og ofanverðu er um 40 cm.
Skipulagsnefnd mælir með því að ótútgrafin rými sem sýnd eru á teikningu verði skráð sem gluggalaust tæknirými eða geymslur.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akrahverfis í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Kornakurs 5, 6 og 8 sem og Jafnakurs 6 og 8 og Skeiðakurs 7 og 8.
09
Kirkjulundur 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við verslunar-og þjónustuhúsnæðis (Dýralæknastofur)sem hýsa á geymslur sem tengjast starfseminni.
Skipulagsnefnd leggur til að sótt verði um breytingu deiliskipulags Miðbæjar-Þjónustuhverfis og gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi þeirri tillögu til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags.
10
Smáraflöt 12 Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir því að fyrir miðjum byggingarreit verði rými með gólfi sem er hálfri hæð neðar og hálfri hæð ofar en aðalgólf hússins en samkvæmt deiliskipulagi eru hús á þessari lóð 1 hæð. Tillagan fer þó ekki yfir leyfilega hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi. Byggingarreitur stækkar auk þess um hálfan metra til vesturs.
Innsend erindi frá eigendum þriggja húsa sem grenndarkynning náði til gera athugasemd við það að íverurými með gluggum stuðli að innsýn að aðliggjandi húsum og húsagörðum og raski því friðhelgi. Lögð er áhersla á að deiliskipulag haldi hvað varðar það ákvæði að hús séu einnar hæðar en ekki ein og hálf hæð eins og húsið verður að hluta samkvæmt tillögunni.
Skipulagsnefnd leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að eftirfarandi ákvæði verði bætt við:
"Neðri brún glugga á vesturhlið efri hæðar verði ekki neðar en í 180 cm hæð yfir gólfi. Þess verði gætt að ekki verði röskun á friðhelgi aðliggjandi lóða hvað varðar innsýn af efri hæð hússins."
Á deiliskipulagsuppdrætti skal sýna með skýrum hætti byggingarreit innan aðalbyggingarreits þar sem heimilt verður að hafa tvö gólf, annað hálfri hæð ofar en aðalgólf og hitt hálfri hæð neðar en aðalgólf.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að ef vikið verði út frá ákvæði deiliskipulags um að einnar hæðar hús geti að einhverju leyti talist 1 1/2 hæð sé tryggt að útfærsla breytingarinnar raski ekki friðhelgi aðliggjandi lóða hvað innsýn varðar.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr. og 44.gr.skipulagslaga.
11
Þorraholt, dsk breyting, Hnoðraholt norður
Skipulagstjóri kynnti hugmyndir Arkþings um breytingar á deiliskipulagi við sunnavert Þorraholt. Tillagan er unnin á vegum landeiganda. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun íbúða. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
12
Hönnun - Útboð - Undirgöng Arnaneshæð
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir undirgögn fyrir gangandi og hjólandi umferð undir götuna Arnarnes. Umsókn er í samræmi við deiliskipulag Arnarness.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sem er í samræmi við þá verklýsingu sem lögð eru fram.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
13
Hönnun - Útboð - Stígur frá Ásgarði að Bæjargarði
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir göngustíg og göngubrú frá Ásgarði að göngustíg á hitaveitustokk í Bæjargarði meðfram og yfir Hraunsholtslæk. Umsókn er í samræmi við deiliskipulag Bæjargarðs. Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sem er í samræmi við þá verklýsingu sem lögð eru fram.
14
Hönnun - Útboð -Hnoðraholtsbraut
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð nyrsta hluta Vetrarbrautar í norðanverðu Hnoðraholti frá Arnarnesvegi upp á háholt Hnoðraholts. Tillaga er í samræmi við staðfest deiliskipulag Hnoðraholts norður. Til bráðabirgða mun Vetrarbraut tengjast núverandi Hnoðraholtsbraut sem samkvæmt deiliskipulagi mun nefnast Hnoðraholt. Samkvæmt rammahluta Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 msbr mun norðurhluti Vetrarbrautar tengjast syðri hluta hennar í Vetrarmýri.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sem er í samræmi við framlögð gögn.
15
Hönnun - Útboð -Urriðaholt, Norðurhluti 4. áfangi - gatnagerð og lagnir
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð gatna og lagna innan deiliskipulagssvæðis Urriðaholts Norðurhluta 4.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og gildandi deiliskipulag.
16
Hönnun - Útboð - Veitutengingar að fjölnota íþróttahúsi
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir veitutengingar að Íþróttahúsi í Vetrarmýri (Vífilshöll).
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir jarðvinu, stíga og veitulagnir í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og framlagða verklýsingu.
17
Hönnun - Útboð Þórsgrund, gatnagerð og veitur
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð götu og veitulagna í götunni Þórsgrund sem tengd verður hringtorgi á Vífilsstaðavegi gengt Sjálandsskóla.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og framlögð gögn.
18
Þorrasalir 37 - grenndarkynning
Skipulagsnefnd Garðabæjar vísar til bókunar vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem náði til sömu lóðar og var send inn sem athugasemd við tillöguna. Ekki var tekið tillit til athugasemdarinnar við afgreiðslu málsins smbr.framlagt erindi Kópavogsbæjar dags.14.október 2020.
Bókun Skipulagsnefndar 27.ágúst 2020 var svohljóðandi:
"Lög fram tillaga að breytingu deiliskipulagi Hnoðraholts og Smalaholts í Kópavogi. Breytingin nær til lóðarinnar Þorrasalir 37 og gert ráð fyrir því að lóðin stækki til vestur sem nemur opnu svæði sem er vestan við lóðina að bæjarmörkum að Garðabæ. Byggingarreitur lóðarinna stækkar einnig.
Skipulagsnefnd gerir athugasemd við að opið grænt svæði sé skert og minnir á að lítið er um opin svæði í deiliskiplagi Hnoðraholts í Kópavogi. Í greinargerð deiliskipulags segir um opin svæði: "Deiliskipulagssvæðið liggur að stóru opnu svæði til austurs og suðurs. Inni í hverfinu verða græn svæði sem nýtast fyrir gönguleiðir, leiksvæði og trjárækt. Opin svæði til leikja og útiveru innan deiliskipulagsins þ.e. grenndarvellir, trjáræktarsvæði,ásamt leikskóla tengjast með stígum."
Skiplagsnefnd bendir á að þau opnu grænu svæði sem deiliskipulagið getur um eru Garðabæjarmegin sveitarfélagsmarka og þessu hefur verið gætt í tilögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem nú er í auglýsingu að græn svæði séu milli núverandi byggðar í Kópavogi og hinnar nýju byggðar Garðabæjarmegin. Því er eðlilegt að Kópavogur sjái til þess að þau fáu svæði sem eru opin Kópavogsmegin séu óskert. "
19
Austurkór 47 - óleyfisframkvæmd
Erindi lagt fram. Skipulagsnefnd lítur á það sem sjálfsagðan hlut að eigendur lóða í Kópavogi nemi ekki land innan lögsögu Garðabæjar.
20
Ályktun um lagningu Vorbrautar við Þorrasali í Kópavogi
Ályktun húsfélags að Þorrasölum 1-3 dags.10.maí 2021 lögð fram. Skipulagsnefnd minnir á samantekt tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar í maí 2020 sem send var íbúum í Þorrasölum þar sem að forsaga málsins er rakin. Þar kemur fram að það eigi ekki að koma eigendum eigna í Þorrasölum eða skipulagsyfirvöldum í Kópavogi á óvart að stefna Garðabæjar hefur um árabil verið sú að íbúðarbyggð í Hnoðraholti í Garðabæ verði tengd Arnarnesvegi um Leirdalsop.
21
Glaðheimar vesturhluti. Breytt deiliskipulag í Kópavogi.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að fá kynningu á tillögunni á næsta fundi nefndarinnar sem stefnt er að þann 16.júní nk.
22
Vatnsendahvarf - Skipulagslýsing
Ekki er gerð athugasemd við verkefnislýsinguna en skipulagsnefnd áskilur sér rétt til þess að gera athugasemd á síðar stigum deiliskipulagsferlisins.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að fá kynningu á þeim áformum sem uppi eru á næsta fundi nefndarinnar sem stefnt er að þann 16.júní nk.
25
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 6
Fundargerð lögð fram.