Hönnun - Útboð - Stígur frá Ásgarði að Bæjargarði
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (887). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir göngustíg og göngubrú frá Ásgarði að Bæjargarði.
Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2101213)
Bæjarráð Garðabæjar
02
20. (1978). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir göngustíg og göngubrú frá Ásgarði að Bæjargarði.
Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir göngustíg og göngubrú frá Ásgarði að göngustíg á hitaveitustokk í Bæjargarði meðfram og yfir Hraunsholtslæk. Umsókn er í samræmi við deiliskipulag Bæjargarðs. Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sem er í samræmi við þá verklýsingu sem lögð eru fram.