20. (1978). fundur
20. (1978). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
01.06.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2104410
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu byggingarleyfisumsóknar á lóðinni við Lambhaga 9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús við Lambhaga 9 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en deiliskipulag fyrir svæðið liggur ekki fyrir.
Málsnúmer 2105343
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi og breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi og breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2007282
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness í tilefni umsóknar um stækkun á byggingarreit fyrir bílgeymslu á lóðinni við Blikanes 14. Grenndarkynna skal tillöguna öllum eigendum lóða við Blikanes og eigendum lóða við Tjaldanes 11 og 13.
Málsnúmer 2105021
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óleyfisframkvæmdir við Austurkór 47.
Lögð fram.
Málsnúmer 2103505
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Kornakur 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um byggingarleyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Kornakri 7 sem gerir ráð fyrir að kjallari verði undir aðalhæð hússins. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum lóða við Kornakur 5, 6 og 8, Jafnakurs 6 og 8 og Skeiðakurs 7 og 8.
Málsnúmer 2012115
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Smáraflöt 12.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Smáraflöt 12. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og bárust athugasemdir frá eigendum þriggja lóða við Stekkjarflöt.
Tillagan gerir ráð fyrir því að fyrir miðjum byggingarreit verði rými með gólfi sem er hálfri hæð neðar og hálfri hæð ofar en aðalgólf hússins en samkvæmt deiliskipulagi eru hús á þessari lóð 1 hæð. Tillagan fer þó ekki yfir leyfilega hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi. Byggingarreitur stækkar auk þess um hálfan metra til vesturs.
Vegna athugasemda nágranna samþykkir skipulagsnefnd að bæta eftirfarandi ákvæði við tillöguna.
"Neðri brún glugga á vesturhlið efri hæðar verði ekki neðar en í 180 cm hæð yfir gólfi. Þess verði gætt að ekki verði röskun á friðhelgi aðliggjandi lóða hvað varðar innsýn af efri hæð hússins.“
Á deiliskipulagsuppdrætti skal sýna með skýrum hætti byggingarreit innan aðalbyggingarreits þar sem heimilt verður að hafa tvö gólf, annað hálfri hæð ofar en aðalgólf og hitt hálfri hæð neðar en aðalgólf.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að ef vikið verði út frá ákvæði deiliskipulags um að einnar hæðar hús geti að einhverju leyti talist 11/2 hæð sé tryggt að útfærsla breytingarinnar raski ekki friðhelgi aðliggjandi lóða hvað innsýn varðar.
Almar Guðmundsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 2104498
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi á lóðinni við Þorrasali 37 í Kópavogi.
Málið varðar tilkynningu frá Kópavogi um samþykkt bæjarstjórnar Kópavogs á breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar við Þorrasali 37.
Bæjarráð samþykkir að bókun skipulagsnefndar verði send Kópavogsbæ.
Málsnúmer 2011499
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir undirgöng á Arnarneshæð.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir byggingu undirganga á Arnarneshæð. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsnúmer 2105127
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsnúmer 2101213
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir göngustíg og göngubrú frá Ásgarði að Bæjargarði.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir göngustíg og göngubrú frá Ásgarði að Bæjargarði.
Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsnúmer 2105133
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Þórsgrund.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Þórsgrund. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsnúmer 1906309
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð vegna nyrsta hluta Vetrarbrautar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð vegna nyrsta hluta Vetrarbrautar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsnúmer 2103518
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir veitutengingar að fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir veitutengingar að fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Málsnúmer 2104460
14
Bréf skólastjóra Garðaskóla varðandi húsnæðismál skólans, dags. 19.04.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105649
15
Bréf Klúbbsins Geysis varðandi styrk til starfseminnar, dags. 26.05.21
Bæjarráð samþykkir að veita Styrktarfélagi Klúbbsins Geysis styrk að fjárhæð kr. 100.000.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105677
16
Bréf Garðasóknar varðandi ársreikning Styrktarsjóðs Garðasóknar 2020.
Málsnúmer 2105609
17
Bréf Landverndar varðandi moldarflutninga á Álftanesi, dags. 26.05.21.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara og veita umbeðnar upplýsingar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2006656
18
Opnun tilboða í malbikun gatna í Urriðaholti.
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdi við malbikun gatna í Urriðaholti.
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 89.700.000
Fagverk Verktakar ehf. kr. 90.304.950
Kostnaðaráætlun kr. 112.898.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Loftorku Reykjavík ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 1908337
19
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033, dags. 21.05.2021.
Lögð fram.
Málsnúmer 1902222
20
Umsóknir um þátttökurétt í lokuðu útboði vegna kaupa á þjónustu og ráðgjöf við úthlutun lóðarréttinda og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.
Á rafrænum opnunarfundi voru umsóknir frá eftirfarandi aðilum opnaðar.
FS Torg ehf.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka
Kvika banki
Bæjarráð vísar umsóknum til yfirferðar en gert er ráð fyrir að tilkynning um val á þátttakendum verði send út 9. júní nk.
Björg Fenger vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.