Smáraflöt 12 Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (887). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Smáraflöt 12. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og bárust athugasemdir frá eigendum þriggja lóða við Stekkjarflöt.
Tillagan gerir ráð fyrir því að fyrir miðjum byggingarreit verði rými með gólfi sem er hálfri hæð neðar og hálfri hæð ofar en aðalgólf hússins en samkvæmt deiliskipulagi eru hús á þessari lóð ein hæð. Tillagan fer þó ekki yfir leyfilega hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi. Byggingarreitur stækkar auk þess um hálfan metra til vesturs.
Vegna athugasemda nágranna samþykkir skipulagsnefnd að bæta eftirfarandi ákvæði við tillöguna.
"Neðri brún glugga á vesturhlið efri hæðar verði ekki neðar en í 180 cm hæð yfir gólfi. Þess verði gætt að ekki verði röskun á friðhelgi aðliggjandi lóða hvað varðar innsýn af efri hæð hússins."
Á deiliskipulagsuppdrætti skal sýna með skýrum hætti byggingarreit innan aðalbyggingarreits þar sem heimilt verður að hafa tvö gólf, annað hálfri hæð ofar en aðalgólf og hitt hálfri hæð neðar en aðalgólf.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að ef vikið verði út frá ákvæði deiliskipulags um að einnar hæðar hús geti að einhverju leyti talist 11/2 hæð sé tryggt að útfærsla breytingarinnar raski ekki friðhelgi aðliggjandi lóða hvað innsýn varðar. (Mál nr. 2012115)
Almar Guðmundsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
20. (1978). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Smáraflöt 12. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og bárust athugasemdir frá eigendum þriggja lóða við Stekkjarflöt.
Tillagan gerir ráð fyrir því að fyrir miðjum byggingarreit verði rými með gólfi sem er hálfri hæð neðar og hálfri hæð ofar en aðalgólf hússins en samkvæmt deiliskipulagi eru hús á þessari lóð 1 hæð. Tillagan fer þó ekki yfir leyfilega hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi. Byggingarreitur stækkar auk þess um hálfan metra til vesturs.
Vegna athugasemda nágranna samþykkir skipulagsnefnd að bæta eftirfarandi ákvæði við tillöguna.
"Neðri brún glugga á vesturhlið efri hæðar verði ekki neðar en í 180 cm hæð yfir gólfi. Þess verði gætt að ekki verði röskun á friðhelgi aðliggjandi lóða hvað varðar innsýn af efri hæð hússins.“
Á deiliskipulagsuppdrætti skal sýna með skýrum hætti byggingarreit innan aðalbyggingarreits þar sem heimilt verður að hafa tvö gólf, annað hálfri hæð ofar en aðalgólf og hitt hálfri hæð neðar en aðalgólf.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að ef vikið verði út frá ákvæði deiliskipulags um að einnar hæðar hús geti að einhverju leyti talist 11/2 hæð sé tryggt að útfærsla breytingarinnar raski ekki friðhelgi aðliggjandi lóða hvað innsýn varðar.
Almar Guðmundsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir því að fyrir miðjum byggingarreit verði rými með gólfi sem er hálfri hæð neðar og hálfri hæð ofar en aðalgólf hússins en samkvæmt deiliskipulagi eru hús á þessari lóð 1 hæð. Tillagan fer þó ekki yfir leyfilega hámarkshæð samkvæmt deiliskipulagi. Byggingarreitur stækkar auk þess um hálfan metra til vesturs.
Innsend erindi frá eigendum þriggja húsa sem grenndarkynning náði til gera athugasemd við það að íverurými með gluggum stuðli að innsýn að aðliggjandi húsum og húsagörðum og raski því friðhelgi. Lögð er áhersla á að deiliskipulag haldi hvað varðar það ákvæði að hús séu einnar hæðar en ekki ein og hálf hæð eins og húsið verður að hluta samkvæmt tillögunni.
Skipulagsnefnd leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að eftirfarandi ákvæði verði bætt við:
"Neðri brún glugga á vesturhlið efri hæðar verði ekki neðar en í 180 cm hæð yfir gólfi. Þess verði gætt að ekki verði röskun á friðhelgi aðliggjandi lóða hvað varðar innsýn af efri hæð hússins."
Á deiliskipulagsuppdrætti skal sýna með skýrum hætti byggingarreit innan aðalbyggingarreits þar sem heimilt verður að hafa tvö gólf, annað hálfri hæð ofar en aðalgólf og hitt hálfri hæð neðar en aðalgólf.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að ef vikið verði út frá ákvæði deiliskipulags um að einnar hæðar hús geti að einhverju leyti talist 1 1/2 hæð sé tryggt að útfærsla breytingarinnar raski ekki friðhelgi aðliggjandi lóða hvað innsýn varðar.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna með ofangreindri breytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr. og 44.gr.skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
6. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu og skoðun hjá tækni-og umhverfissviði ásamt innsendum athugasemdum. Lögð fram greinargerð umsækjanda vegna innsendra athugasemda.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
4. fundur
Grenndarkynningu lýkur 20.02.21
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu.
Athugasemdir sem borist haf lagðar fram.
Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
1. (879). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við núverandi hús að Smáraflöt 12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 10 og 14 og Stekkjarflatar 13, 15 og 17. (Mál nr. 2012115)
Almar Guðmundsson, vék af fundi við afgreiðslu tillögunnar.
Bæjarráð Garðabæjar
07
50. (1958). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við núverandi hús að Smáraflöt 12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 10 og 14 og Stekkjarflatar 13, 15 og 17.
Almar Guðmundsson, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
13. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir að byggingarreitur stækki um 50 cm til vesturs á 11,5 m kafla fyrir miðjum byggingarreit.
Skipulagsnefnd metur breytinguna óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Smáraflatar 10 og 14 og Stekkjarflatar 13, 15 og 17 .