Beint í efni

Hönnun - Útboð -Hnoðraholtsbraut

Málsnúmer 1906309

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (887). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð vegna nyrsta hluta Vetrarbrautar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 1906309)

Bæjarráð Garðabæjar

02

20. (1978). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð vegna nyrsta hluta Vetrarbrautar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð nyrsta hluta Vetrarbrautar í norðanverðu Hnoðraholti frá Arnarnesvegi upp á háholt Hnoðraholts. Tillaga er í samræmi við staðfest deiliskipulag Hnoðraholts norður. Til bráðabirgða mun Vetrarbraut tengjast núverandi Hnoðraholtsbraut sem samkvæmt deiliskipulagi mun nefnast Hnoðraholt. Samkvæmt rammahluta Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 msbr mun norðurhluti Vetrarbrautar tengjast syðri hluta hennar í Vetrarmýri.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sem er í samræmi við framlögð gögn.