Beint í efni

Hönnun - Útboð - Undirgöng Arnaneshæð

Málsnúmer 2011499

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (887). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (BF,ÁHJ,SHJ,SG,GVG,JS,AG,GE) tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir byggingu undirganga á Arnarneshæð. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. Þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ). (Mál nr. 2011499)

Bæjarráð Garðabæjar

02

20. (1978). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir byggingu undirganga á Arnarneshæð. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

7. fundur

Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir undirgögn fyrir gangandi og hjólandi umferð undir götuna Arnarnes. Umsókn er í samræmi við deiliskipulag Arnarness.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sem er í samræmi við þá verklýsingu sem lögð eru fram.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarráð Garðabæjar

04

13. (1971). fundur

Á fundi skipulagsnefndar var gerð grein fyrir mögulegum breytingum á gatnamótum á brú við Arnarnesveg og Hafnarfjarðarveg þannig að afrein til suðurs verði tekin af og í þess stað komi ljósastýring á beygju til suðurs.

Lagður fram tölvupóstur með undirskriftum fjölmargra íbúa á Arnarnesi þar sem fyrirhugaðri breytingu er harðlega mótmælt.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til tækni- og umhverfissviðs og að við hönnun undirgangna verði tekið mið að því að hafa afrein af Arnarnesvegi til suðurs óbreytta

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

5. fundur

Guðbjörg Brá Gísladóttir deildarstjóri umhverfis og framkvæmda gerði grein fyrir tillögu að breytingu gatnamóta götunnar Arnarnesvegar við Arnarnes og Hafnarfjarðarvegar sem gerir ráð fyrir breytingu á afrein úr vestri til suðurs vestan við brúna yfir Hafnarfjarðarveg. Þetta er gert til þess að koma fyrir undirgöngum fyrir gangandi og hjólandi umferð undir Arnarnes. Skipulagsnefnd (umferðarnefnd) gerir ekki athugasemd við útfærsluna. Baldur Ó. Svavarsson víkur af fundi undir þessum lið.