Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Málsnúmer 2105127

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

23. (1981). fundur

Lögð frameftirfarandi tilboð í framkvæmdir við gatnagerð í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

PK verk ehf. kr. 587.455.190
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 598.704.765
Grafa og grjót ehf. kr. 541.499.700
Óskatak ehf. kr. 570.370.150
Háfell ehf. kr. 527.200.800

Kostnaðaráætlun kr. 575.539.500

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Háfells ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

9. (887). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2105127)

Bæjarráð Garðabæjar

03

20. (1978). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gerð gatna og lagna innan deiliskipulagssvæðis Urriðaholts Norðurhluta 4.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og gildandi deiliskipulag.