Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar Urriðaholtsstræti 9.

Málsnúmer 2105343

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

33. (2040). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga Urriðaholts vegna lóðarinnar Urriðaholtsstræti 9 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Bæjarráð Garðabæjar

02

23. (2030). fundur

Lögð fram tillaga skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Engar athugasemdir bárust.

Í tillögunni felast eftirfarandi breytingar. Landnotkun breytist úr verslun- og þjónustu í íbúðir fyrir 50 ára og eldri, kvaðir eru settar um sameiginleg rými. Gert verður ráð fyrir 80 íbúðum, 24 íbúðir undir 90 m2 og 56 íbúðir yfir 90 m2. Almennir skipulagsskilmálar fyrir íbúðir í 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts gilda fyrir lóðina eftir breytingu. Lóðarmörk Urriðaholtsstrætis 7 og 9 og lóðarörk spennistöðvar breytast. Byggingarreitur hliðrast og breytist. Byggingarreitur er brotinn upp og myndaðar sjónlínur milli byggingarhluta. Salarhæðir og hæðafjöldi byggingar breytist og hámarkshæð húss breytist lítillega. Hámarkshæð tveggja inngangseininga lækkar, hámarkshæð einnar einingar er óbreytt en hámarkshæð inngangseiningar næst Lautargötu hækkar um 0,8 m. Byggingarmagn á lóðinni minnkar. Bílastæðum á lóð fækkar til samræmis við breytta landnotkun. Aðkoma að bílakjallara breytist. Krafa er gerð um grasstæði næst Urriðaholtsstræti. Aðkomugata færist lítillega til vesturs en tenging við Urriðaholtsstræti helst óbreytt.

Tillagan kemur til samþykktar þegar fyrir liggur staðfest samþykkt á tillögu um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytinga á landnotkunarreitum deiliskipulagssvæðis 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts, sbr. 10. tl., fundargerðar bæjarráðs. (Mál nr. 2110166)

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts 4. áfangi norðurhluti sem nær til lóðarinnar Urriðaholtstræti 9 að lokinni auglýsingu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis.
Í breytingartillögunni felst eftirfarandi:
Notkun breytist úr verslun- og þjónustu í íbúðir fyrir 50 ára og eldri, kvaðir eru settar um sameiginleg rými.
Gert verður ráð fyrir 80 íbúðum, 24 íbúðir undir 90 m2 og 56 íbúðir yfir 90 m2.
Almennir skilmálar fyrir íbúðir í norðurhluta 4 gilda fyrir lóðina eftir breytingu.
Lóðamörk Urriðaholtsstrætis 7 og 9 og lóðamörk spennistöðvar breytast.
Byggingarreitur hliðrast og breytist. Byggingarreitur brotinn upp og myndaðar sjónlínur milli byggingahluta.
Salarhæðir og hæðafjöldi byggingar breytist en hámarkshæð húss breytist lítillega.
Hámarkshæð tveggja inngangseininga lækkar, hámarkshæð einnar einingar er óbreytt en hámarkshæð inngangseiningar næst Lautargötu hækkar 0,8 m.
Byggingamagn á lóð minnkar. Bílastæðum á lóð fækkar til samræmis við breytta notkun.
Aðkoma að bílakjallara breytist. Krafa er gerð um grasstæði næst Urriðaholtsstræti.
Aðkomugata færist lítillega til vesturs en tenging við Urriðaholtsstræti helst óbreytt.
Engar athugasemdir bárust innan tilskilins frests.
Umsagnir sem borist hafa lagðar fram en þær gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts 4. áfangi norðurhluti í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan verði staðfest eftir að aðalskipulagsbreyting sú sem var auglýst samhliða hefur hlotið staðfestingu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

2. (898). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að lóðin við Urriðaholtsstræti 9 breytist úr lóð fyrir verslun og þjónustu í lóð fyrir íbúðir fyrir 50 ára og eldri. (Mál nr. 2105343)

Samhliða er lagt til að auglýst verði breyting á aðalskipulagi 2016 - 2030 vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð Garðabæjar

05

4. (2011). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að lóðin við Urriðaholtsstræti 9 breytist úr lóð fyrir verslun og þjónustu í lóð fyrir íbúðir fyrir 50 ára og eldri.

Samhliða er er lagt til að auglýst verði breyting á aðalskipulagi 2016 - 2030 vegna svæðis á norðurhluta Urriðaholts.

Sara Dögg Svanhildardóttir, situr hjá með vísan til bókunar undir 15. tl.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts 4. Áfangi norðurhluti sem nær til lóðarinnar Urriðaholtstræti 9 að lokinni forkynningu.
Í breytingartillögunni felst eftirfarandi:
Notkun breytist úr verslun- og þjónustu í íbúðir fyrir 50 ára og eldri, kvaðir eru settar um sameiginleg rými.
Gert verður ráð fyrir 80 íbúðum, 24 íbúðir undir 90 m2 og 56 íbúðir yfir 90 m2.
Almennir skilmálar fyrir íbúðir í norðurhluta 4 gilda fyrir lóðina eftir breytingu.
Lóðamörk Urriðaholtsstrætis 7 og 9 og lóðamörk spennistöðvar breytast.
Byggingarreitur hliðrast og breytist. Byggingarreitur brotinn upp og myndaðar sjónlínur milli byggingahluta.
Salarhæðir og hæðafjöldi byggingar breytist en hámarkshæð húss breytist lítillega.
Hámarkshæð tveggja inngangseininga lækkar, hámarkshæð einnar einingar er óbreytt en hámarkshæð inngangseiningar næst Lautargötu hækkar 0,8 m.
Byggingamagn á lóð minnkar. Bílastæðum á lóð fækkar til samræmis við breytta notkun.
Aðkoma að bílakjallara breytist. Krafa er gerð um grasstæði næst Urriðaholtsstræti
Aðkomugata færist lítillega til vesturs en tenging við Urriðaholtsstræti helst óbreytt.
Lagt fram erindi Urriðaholts ehf sem er eigandi lóðarinnar þar sem fram koma ýmsar ábendingar um þá tillögu sem hefur verið forkynnt.
Skipulagsnefnd fellst á að tillögunni sé breytt til samræmis við framkomnar ábendingar.
Tillögunni með ofangreindum breytingum vísað til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Auglýsa skal tillögu samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til sama landnotkunarreits.


Bæjarstjórn Garðabæjar

07

14. (892). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að breyta lóðinni við Urriðaholtsstræti 9 úr lóð fyrir verslun og þjónustu í íbúðarhúsalóð fyrir 50 ára og eldri.“ (Mál nr. 2105343)

Bæjarráð Garðabæjar

08

40. (1998). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir að breyta lóðinni við Urriðaholtsstræti 9 úr lóð fyrir verslun og þjónustu í íbúðarhúsalóð fyrir 50 ára og eldri.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

12. fundur

Lögð fram tilllaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 4 sem nær til lóðarinnar Urriðaholtsstræti 9:
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir ráðgjafi hjá Alta og Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf gerðu grein fyrir aðalskipulags-og deiliskipulagstillögunum.
Í breytingartillögunni felst að.
Notkun breytist úr verslun- og þjónustu í íbúðir fyrir 50 ára og eldri, kvaðir eru settar um sameiginleg rými.
Gert verður ráð fyrir 79 íbúðum, 23 íbúðir undir 90 m2 og 56 íbúðir yfir 90 m2.
Almennir skilmálar fyrir íbúðir í norðurhluta 4 gilda fyrir lóðina eftir breytingu.
Lóðamörk Urriðaholtsstrætis 7 og 9 og lóðamörk spennistöðvar breytast.
Byggingarreitur hliðrast og breytist. Byggingarreitur brotinn upp og myndaðar sjónlínur milli byggingahluta.
Salarhæðir og hæðafjöldi byggingar breytist en hámarkshæð húss helst óbreytt.
Byggingamagn á lóð minnkar. Bílastæðum á lóð fækkar til samræmis við breytta notkun.
Aðkoma að bílakjallara breytist. Krafa er gerð um grasstæði næst Urriðaholtsstræti
Aðkomugata færist lítillega til vesturs en tenging við Urriðaholtsstræti helst óbreytt.
Lagðar fram umsagnir sem borist hafa vegna lýsingar verkefnisins sem auglýst var í sumar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í sarmræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

9. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu skipulagslýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar og deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4. Engar ábendingar bárust. Umsagnir frá Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun og Kópavogsbæ lagðar fram. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa til úrvinnslu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

9. (887). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi og breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, öðrum umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. (Mál nr. 2105343)

Bæjarráð Garðabæjar

12

20. (1978). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu vegna tillögu um breytingu á aðalskipulagi og breytingu á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 9. Leita skal umsagnar um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og kynna hana fyrir almenningi samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

7. fundur

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir hjá Alta ehf og Jón Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Urriðaholts ehf kynntu tillögu að skipulagslýsingu á breytingu aðalskipulags og deiliskipulags sem nær til Urriðaholts Norðurhluta 4. Skipulagsmótunin hafi það að markmiði að lóðin Urriðaholtsstræti 9 breytist úr atvinnulóð í lóð fyrir fjölbýlishús sem verði ætlað fyrir aldurshópinn 50 plús. Samkvæmt drögum að tillögu er gert ráð fyrir 70-80 íbúðum í 4 stakstæðum húsum sem yrðu tengd saman á jarðhæð.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1.mgr.30.gr. og 1.mgr.40..gr.skipulagslaga nr.123/2010. Hún skal auglýst almenningi og send Skipulagsstofnun til athugunar og umsagnaraðilum til umsagnar.