Beint í efni

9. fundur

12.08.2021
Skipulagsnefnd Garðabæjar

9. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

12.08.2021

Kl. 08:00 - 09:40

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur

Ritari

  • Sólveig H. Jóhannsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2010333

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 7. Breyting á landnotkun v. búsetukjarna í Brekkuás

Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytingar á landnotkun fyrir búsetukjarna eftir auglýsingu. Innsendar athugasemdir lagðar fram. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs til úrvinnslu.

Málsnúmer 2005435

02

Búsetukjarni Brekkuás 2, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts vestra

Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts (Ásahverfi) vestra vegna breytingar á lóð Brekkuás 2 eftir auglýsingu. Innsendar athugasemdir lagðar fram. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs til úrvinnslu.

Málsnúmer 2106252

03

Víkurgata 4 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga deiliskipulagsbreytingu sem hafði verið vísað í grenndarkynningu á afgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 21.06.2021. Einnig lagðar fram innsendar athugasemdir. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs til úrvinnslu.

Málsnúmer 2103593

04

Kinnargata 92 - stækkun bílakjallara -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 92 sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 19 í 20 og breytingu á byggingarreit. Engar athugasemdir bárust við tillöguna á auglýsingartíma og telst tillagan því samþykkt og skal hún send til Skipulagsstofnunar til meðferðar.

Málsnúmer 2105343

05

Urriðaholtsstræti 9 - deiliskipulagsbreyting - Aðal og deiliskipulagsbreyting

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu skipulagslýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar og deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4. Engar ábendingar bárust. Umsagnir frá Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun og Kópavogsbæ lagðar fram. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa til úrvinnslu.

Málsnúmer 2107049

06

Mánahvoll leikskóli - Umsókn um byggingarleyfi



Lögð fram að nýju umsókn um byggingarleyfi fyrir 6 deilda leikskóla sem reisa skal úr færanlegum einingum. Leikskólinn Mánahvoll mun standa við Spítalaveg austan við leikskólann Sunnuhvol vestur af Vífilsstaðaspítala. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu en aðalskipulag gerir ráð fyrir landnotkun fyrir samfélagsþjónustu. Byggingarleyfinu var vísað í grenndarkynningu á afgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 07.07.2021. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna 6 deilda leikskóla sem reistur verður úr færanlegum einingum.

Málsnúmer 2106626

07

Smiðsbúð 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir því að breyta mannvirki þannig að þar verði 10 íbúðir að sjálfstæðum einingum og 1 atvinnurými. Umsókninni vísað til tækni- og umhverfissviðs til skoðunar.

Málsnúmer 2103505

08

Kornakur 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram að nýju umsókn um byggingarleyfi að einbýlishúsi sem m.a. gerir ráð fyrir því að kjallari verði undir aðalgólfi húss. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.

Málsnúmer 2107003

09

Bakkaflöt 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi um að stækka Bakkaflöt 5 til austurs og fjarlægja núverandi bílgeymslu, lækka aðkomuplan í hæð við götu og gera opið bílskýli undir nýrri viðbyggingu. Húsið er í dag 242,2 m2 og verður eftir breytingu 313,1 m2 með nýtingarhlutfallið 0,27. Bílskýli hýsir einn bíl og verða 3 bílastæði á lóð. Málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa til skoðunar. Baldur Ó. Svavarsson víkur af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2108104

10

Kirkjulundur 17 - Deiliskipulagsbreyting

Á fundi skipulagsnefndar þann 27.05.2021 var lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerði ráð fyrir viðbyggingu við verslunar- og þjónustuhúsnæði sem hýsa geymslur sem tengjast starfseminni. Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi þeirri tillögu í grenndarkynningu. Nú er lögð fram beiðni um breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar - Þjónustuhverfi fyrir Kirkjulund 17 fyrir skorstein og kalda geymslu. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókninni í grenndarkynningu. Grenndarkynningin skal ná til Kirkjulundar 11, 13, 15 og 19.

Málsnúmer 2108048

11

Súlunes 4 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs þar sem sótt er um leyfi til að byggja 50-100 m2 vinnustofu á baklóð hússins. Skipulagsnefnd vísar erindinu til skipulagsráðgjafa deiliskipulags Arnarness og tækni- og umhverfissviðs til umsagnar og skoðunar.

Málsnúmer 2102539

12

Blikanes 9 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram að nýju umsókn um deiliskipulagsbreytingu fyrir Blikanes 9 fyrir viðbótar bifreiðarstæði í norðvesturhorni lóðarinnar að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 2104410

13

Lambhagi 9 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram að nýju umsókn um byggingarleyfi fyrir Lambhaga 9 að lokinni grenndarkynningu vegna breytingar á þaki og skyggni yfir inngangi. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2106218

14

Vesturtún 38 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna breytingar á húsnæði Vesturtúns 38 og 40 sem nær til hækkunar á þaki og svalir á göflum sem ná út fyrir byggingarreit. Nýtingarhlutfallið fer í 0,43. Málinu vísað í grenndarkynningu.

Málsnúmer 2106219

15

Vesturtún 40 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi vegna breytingar á húsnæði Vesturtúns 38 og 40 sem nær til hækkunar á þaki og svalir á göflum sem ná út fyrir byggingarreit. Nýtingarhlutfallið fer í 0,43. Málinu vísað í grenndarkynningu.

Málsnúmer 2105485

16

Lambhagi 20 Sólskáli- Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Á afgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 21.06.2021 samþykkt að vísa í grenndarkynningu umsókn um byggingarleyfi fyrir byggingu sólskýlis við norðausturenda einbýlishússins við Lambhaga 20. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2106416

17

Aðalskipulag Reykjavíkur 2040. Endurskoðun á stefnu um íbúðarbyggð og blandaða byggð.

Lagt fram.

Málsnúmer 2107237

18

Aðalskipulag Hafnarfjarðar - Breyting - Reykjanesbraut

Lagt fram.