Beint í efni

Spítalavegur 2a Mánahvoll leikskóli - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2107049

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

34. (1992). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita tækni- og umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að byggja sex deilda leikskóla við Spítalaveg 2b.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

10. (888). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi fyrir útgáfu á byggingarleyfi fyrir 6 deilda leikskóla úr færanlegum húseiningum að Spítalavegi 2B. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2107049).

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

10. (888). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

05

30 (1988). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita leyfi fyrir útgáfu á byggingarleyfi fyrir 6 deilda leikskóla úr færanlegum húseiningum að Spítalavegi 2B. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

9. fundur


Lögð fram að nýju umsókn um byggingarleyfi fyrir 6 deilda leikskóla sem reisa skal úr færanlegum einingum. Leikskólinn Mánahvoll mun standa við Spítalaveg austan við leikskólann Sunnuhvol vestur af Vífilsstaðaspítala. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu en aðalskipulag gerir ráð fyrir landnotkun fyrir samfélagsþjónustu. Byggingarleyfinu var vísað í grenndarkynningu á afgreiðslufundi skipulagsstjóra þann 07.07.2021. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna 6 deilda leikskóla sem reistur verður úr færanlegum einingum.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

07

8. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir 6 deilda leiksskóla sem reisa skal úr færanlegum einingum til að uppfylla brýna þörf fyrir leiksskólaplássi í Garðabæ næstu ár.
Leiksskólinn sem nefndur hefur verið Mánahvoll stendur við Spítalaveg austan við leikskólann Sunnuhvol vestur af Vífilsstaðaspítala. Lóðin hefur hlotið heitið Spítalavegur 2a skv mæliblaði sem unnið hefur verið af Eflu.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu en aðalskipulag gerir ráð fyrir landnotkun fyrir samfélagsþjónustu.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga. Grenndarkynna skal lóðarréttarhöfum nærliggjandi lóða.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.