8. fundur
8. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
07.07.2021
Kl. 15:30 - 16:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2107049
01
Mánahvoll leikskóli - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir 6 deilda leiksskóla sem reisa skal úr færanlegum einingum til að uppfylla brýna þörf fyrir leiksskólaplássi í Garðabæ næstu ár.
Leiksskólinn sem nefndur hefur verið Mánahvoll stendur við Spítalaveg austan við leikskólann Sunnuhvol vestur af Vífilsstaðaspítala. Lóðin hefur hlotið heitið Spítalavegur 2a skv mæliblaði sem unnið hefur verið af Eflu.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu en aðalskipulag gerir ráð fyrir landnotkun fyrir samfélagsþjónustu.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga. Grenndarkynna skal lóðarréttarhöfum nærliggjandi lóða.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2106451
02
Kumlamýri. Breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kumlamýrar á Álftanesi sem gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-Aðkoma að klasa 18-32 færist til norðurs út fyrir eignamörk.
-Lóðir í klasanum hnikast til þannig að nr 26-28 og 30- 32 verða sunnan eignamarka.
-Lóðir 18-20 og 22-24 hnikast til vesturs.
-Aðkoma að klasa 17-31 færist til norðurs út fyrir eignamörk.
-Lóðir í klasa 17-31 hnikast til þannig að lóðir 29-31 færist vestur fyrir eignamörk og aðrar lóðir í klasanum hnikast til.
Skipulagsstjóri metur breytingartillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Kumlamýrar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Kirkjubrekku 17,19,20,21 og 22 sem og Tjarnarbrekku 10,11,12 og 13. Einnig öðrum landeigendum innan deiliskipulagssvæðisins.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2106072
03
Súlunes 33 - óleyfisframkvæmd
Lagt fram erindi frá eiganda þar sem hann gerir grein fyrir því með hvaða hætti staðið verður að því að lagfæra þau ummerki sem óleyfisframkvæmd hefur skilið eftir sig utan lóðar.
Málsnúmer 2106266
04
Hraungata 14 steypt verönd - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um gerð steyptrar verandar undir svölum efri hæðar. Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað steypta verönd eins og spurt er um varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2106436
05
Garðatorg 4 Te og Kaffi útisvæði - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um gerð útisvæðis fyrir kaffihús á jarðhæð Garðatorgs 4 sem yrði við suðurhlið hússins að Vífilsstaðavegi. Að mati skipulagsstjóra er tillaga um útisvæðis fyrir kaffihúsið við suðurhlið hússins í samræmi við markmið deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar og Vífilsstaðavegar/Bæjarbrautar þar sem það stuðlar að og styrkir ímynd Garðatorgs sem miðbær Garðabæjar. Hugmyndin kallar því ekki á deiliskipulagsbreytingar.
Skipulagsstjóri mælir með því að útisvæðið nái ekki lengra frá útvegg en 2 m og gert verði ráð fyrir um 15 sætum. Einnig að svæðið verði afmarkað með skjólgirðingum sem verði ekki hærri en 1,10 m.
Útisvæðið er utan lóðarmarka á landi í eigu Garðabæjar.
Afla þarf samþykkis húsfélags Garðatorgs 4 fyrir útisvæðinu sem og rekstrarleyfis sýslumanns. Þess skal gætt að starfsemi valdi ekki ónæði eða óþægindum fyrir íbúa og rekstraraðila í húsinu.
Málinu vísað til bæjarráðs þar sem að útisvæðið yrði á landi í eigu Garðabæjar.
Málsnúmer 1906181
06
Jafnakur 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Fyrirspurn vísað til umræðu í skipulagsnefnd.
Málsnúmer 2103572
07
Kinnargata 36- Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að gólfkótar raðhúsins, sem eru stallaðir samkvæmt skipulagi breytist sem hér segir:
Kóti húss 36 skv hæðarblaði er 59,30 en fer upp í 59,45.
Kóti húss 38 skv hæðarblaði er 59,40 en fer í upp í 59,45
Kóti húss 40 heldur sér.
Kóti húss 42 skv hæðarblaði er 59,60 en fer niður í 59,45
Allt húsið er í heildarhæð 64,3 sem er heimil heildarhæð miðað við lægsta kóta húss 36 skv hæðarblaði.
Í umsögn deiliskipulagshöfundar kemur fram að ekki er gerð athugasemd við útfærsluna.
Afla skal umsagnar gatnahönnuðar.
Ef sú umsögn verður jákvæð gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 2106434
08
Bakkaflöt 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir nýbyggingu að Bakkaflöt 12 en bygging sem fyrir er verður rifin niður.
Samkvæmt deiliskipulagsbreytingu sem tók gildi fyrr á þessu ári var hámarkshæð húss hækkuð úr 4,2 m yfir aðalgólfi húss í 4,9. Hæð tillögunnar er því neðar en leyfileg hámarkshæð. Tillagan gerir ráð fyrir byggingu sem er innan byggingarreits og með lægra nýtingarhlutfall en deiliskipulag heimilar.
Samkvæmt skoðun er tillagan í samræmi við deiliskipulag Flata og gerir skipulagsstjóri því ekki athugasemd við tillöguna.