Beint í efni

Garðatorg 4 Te og Kaffi útisvæði - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Málsnúmer 2106436

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

26. (1984). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsstjóra um að nýting á útvistarsvæði við suðurhlið hússins að Garðatorgi 4 fyrir starfsemi Te&kaffi sé í samræmi við markmið deiliskipulag miðbæjar. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að kaffihúsið hafi afnot af svæðinu en liggja þarf fyrir samþykki húsfélags íbúa og rekstrarleyfi sýslumanns.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

8. fundur

Lögð fram fyrirspurn um gerð útisvæðis fyrir kaffihús á jarðhæð Garðatorgs 4 sem yrði við suðurhlið hússins að Vífilsstaðavegi. Að mati skipulagsstjóra er tillaga um útisvæðis fyrir kaffihúsið við suðurhlið hússins í samræmi við markmið deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar og Vífilsstaðavegar/Bæjarbrautar þar sem það stuðlar að og styrkir ímynd Garðatorgs sem miðbær Garðabæjar. Hugmyndin kallar því ekki á deiliskipulagsbreytingar.
Skipulagsstjóri mælir með því að útisvæðið nái ekki lengra frá útvegg en 2 m og gert verði ráð fyrir um 15 sætum. Einnig að svæðið verði afmarkað með skjólgirðingum sem verði ekki hærri en 1,10 m.
Útisvæðið er utan lóðarmarka á landi í eigu Garðabæjar.
Afla þarf samþykkis húsfélags Garðatorgs 4 fyrir útisvæðinu sem og rekstrarleyfis sýslumanns. Þess skal gætt að starfsemi valdi ekki ónæði eða óþægindum fyrir íbúa og rekstraraðila í húsinu.
Málinu vísað til bæjarráðs þar sem að útisvæðið yrði á landi í eigu Garðabæjar.