Kinnargata 36- Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
8. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að gólfkótar raðhúsins, sem eru stallaðir samkvæmt skipulagi breytist sem hér segir:
Kóti húss 36 skv hæðarblaði er 59,30 en fer upp í 59,45.
Kóti húss 38 skv hæðarblaði er 59,40 en fer í upp í 59,45
Kóti húss 40 heldur sér.
Kóti húss 42 skv hæðarblaði er 59,60 en fer niður í 59,45
Allt húsið er í heildarhæð 64,3 sem er heimil heildarhæð miðað við lægsta kóta húss 36 skv hæðarblaði.
Í umsögn deiliskipulagshöfundar kemur fram að ekki er gerð athugasemd við útfærsluna.
Afla skal umsagnar gatnahönnuðar.
Ef sú umsögn verður jákvæð gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
03
25. (1983). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita, Hestahofi ehf., kt. 500197-2269, leyfi fyrir byggingu raðhúss að Kinnargötu 36.