Beint í efni

Jafnakur 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Málsnúmer 1906181

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

1. fundur

Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

13. fundur

Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu að lokinni grenndarkynningu.
Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits um 15 m2 í átt að opnu svæði. Fjarlægð stækkaðs byggingarreits að lóðarmörkum er 50 cm.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Akra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

05

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits í átt að opnu svæði. Innan stækkaðs byggingarreits verið heimilt að reisa viðbyggingu fyrir útigeymslu sem verði að hámarki 2.9 m að hæð. Fjarlægð stækkaðs byggingarreits að lóðarmörkum er 50 cm.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarskynna skal eigendum Jafnakurs 5,6 og 7 sem og Kornakurs 7, Sandakurs 18,20,22,24 og 27 og Skeiðakurs 7 og 8.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.

Bæjarráð Garðabæjar

06

32 (1990). fundur

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og vísar því til frekari skoðunar hjá skipulagsstjóra.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Lögð fram fyrirspurn um gerð viðbyggingar sem kallar á stækkun byggingarreits til austurs að opnu svæði.
Skipulagsnefnd mælir ekki með því að byggingarreitir í Akrahverfi verði stækkaðir frekar enda var deiliskipulagi á sínum tíma breytt og gert ráð fyrir ytri byggingarreitum.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

08

8. fundur

Fyrirspurn vísað til umræðu í skipulagsnefnd.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

15. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir skoðun sem ráðist hefur verið í til þess að fá yfirsýn yfir smáhýsi á lóðum í Akrahverfi. Engin ákvæði eru í deiliskipulagi um smáhýsi og gilda því ákvæði byggingarreglugerðar. Skipulagsnefnd telur að þegar að smáhýsi eru áföst byggingum þá þurfi þau að vera innan byggingarreits. Því þurfi að sækja um deiliskipulagsbreytingu ef útfæra á smáhýsið eins og fyrirspurn er að leggja til.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

14. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

11

8. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

10. fundur

Vísað til frekari skoðunar.