Beint í efni

10. fundur

04.07.2019
Skipulagsnefnd Garðabæjar

10. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu

04.07.2019

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1702322

01

Bessastaðir. Dsk breyting vegna aðkomu.

Lögð fram tilllaga að breytingu deiliskipulags Bessastaða sem gerir ráð fyrir breytingum á aðkomu og bílastæðum framan við Bessastaði. Markmiðið er að að bæta öryggi og aðgengi ferðamanna og annara sem sækja Bessastaði heim.

Gert er ráð fyrir að bílastæði sem sýnd eru í brekkunni norðan og vestan við kirkju verð flutt yfir á túnið norðan við núverandi heimreið og fjær forsetasetrinu. Gert verður ráð fyrir um 110 bílastæðum sem munu hafa grænt yfirbragð og ætlað að vera áfram hluti af túnum Bessastaða. Gert verður ráð fyrir stæðum fyrir hópferðabíla meðfram heimreið að norðanverðu. Öryggishlið færist til.

Svæði sem breyting nær til og fjöldi bílastæða er talsvert minna en forkynnt tillaga gerði ráð fyrir.

Kveðið er á um efnisnotkun og útfærslu bílastæða á meðfylgjandi skýringaruppdráttum.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 1.mgr.43.gr.sömu laga. Afla skal umsagna frá Minjastofnun, Vegagerðinni og veitustofnunum á auglýsingartíma.

Málsnúmer 1812022

02

Garðahraun efra-Fólkvangur, deiliskipulag

Tillaga að deiliskipulagi fólkvangsins Garðahrauns efra að lokinni auglýsingu. Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1809189

03

Molduhraun, endurskoðun deiliskipulags.

Tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi Molduhrauns að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust en umsagnir sem óskað var eftir hafa enn ekki borist. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1903082

04

Bæjargarður, stígakerfi, dsk breyting.

Tillaga að breytingun deiliskipulags Bæjargarðs að lokinni auglýsingu. Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1710083

05

Lyngássvæði, deiliskipulag L1 og L2

Tillaga að breytingu deiliskipulags Ása-og Grunda lögð fram efra að lokinni auglýsingu. Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1906365

06

Holtsvegur 55, breyting á deiliskipulagi

Lögð fram fyrirspurn um fjölgun íbúða í fjölbýlishúsi að Holtsvegi 55. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf. Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1902376

07

Urriðah Austurhl 1, Maríugata 1 - 3, deiliskipulagsbreyting

Lagt fram erindi lóðarhafa þar sem óskað er eftir fjölgun íbúða ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar dags 28.júní sem Urriðaholt ehf tekur undir. Í umsögn kemur fram það álit að hægt verði að fjölga íbúðum svo vel fari miðað við tillögur umsækjanda um fjölgun bílastæða á lóð.

Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sbr.1.mgr.43.gr.sömu laga.

Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1907004

08

Hraungata 15-19, deiliskipulagsbreyting. Austurhluti 1.

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í fjölbýlishúsinu.

Vísað til umsagnar deiliskipulagshöfunda og Urriðaholts ehf.

Málsnúmer 1808017

09

Dýjagata 15 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að breytingum á byggingarleyfisgögnum ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar dags.6.júní 2019 sem Urriðaholt ehf tekur undir. Með vísan í umsögnina gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2.mgr. 43.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað varðar umrædd ákvæði deiliskipulags.

Málsnúmer 1706139

10

Haukanes 24 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að byggingarleyfisumsókn fyrir nýtt einbýlishús að Haukanesi 24 sem fer umfram heimild deiliskipulags um heildarnýtingarhlutfall.

Tillögu er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfunda þar sem fram komi hve mikill hluti heildarflatarmáls geti talist rými án grenndaráhrifa og hvort hæð hússins sé í samræmi við ákvæði deiliskipulagsins.

Málsnúmer 1906181

11

Jafnakur 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Vísað til frekari skoðunar.

Málsnúmer 1904344

12

Smáraflöt 35 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram ný útfærsla á byggingarleyfisumsókn. Gert er ráð fyrir 7,5 m löngum vegg á lóðarmörkum en aðrir hlutar norðurhliðar er 50 cm frá lóðarmörkum.

Skipulagsnefnd lítur svo á að útfærslan sé í samræmi við ákvæði deiliskipulags Flata.

Málsnúmer 1906329

13

Árakur breyting á deiliskipulagi - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Svar skipulagsnefndar er að ekki sé æskilegt að þau svæði meðfram götu sem sýnd séu sem græn svæði á deiliskipulagsuppdrætti séu lögð undir bílastæði.

Málsnúmer 1906312

14

Landshlutaáætlanir í skógrækt og lykilhlutverk sveitarfélaga í loftslagsmálum

Erindi lagt fram.

Málsnúmer 1906364

15

Aðalskipulag Reykjavíkur, breyting. Verkefnalýsing og umhverfismat

Lögð fram verklýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Með verklýsingunni er boðaðar umfangsmiklar breytingar á AR2010-2030, sem einkum varða stefnu um íbúðarbyggð, markmið í húsnæðismálum, þéttleika byggðar og forgangsröðun uppbyggingar. Með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga og laga nr. 105/2006 um umhverfismat er verkefnislýsingin, ásamt matslýsingu, lögð fram til kynningar og umsagnar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við verkefnislýsinguna.

Málsnúmer 1907008

16

Þjóðlenda- breytt mörk sveitafélagsins, breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Nýtt skipulag fyrir Leiðarenda.

Lögð fram verkefnislýsing á breytingu aðalskipulags Hafnarfjarðar sem gerir ráð fyrir því að mörk aðalskipulagsins breytist til samræmis við breytingu á staðarmörkum Hafnarfjarðarkaupstaðar til samræmis við úrskurð óbyggðanefndar frá 20.júní 2014. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við verkefnislýsinguna.

Málsnúmer 1906025F

17

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 4

Fundargerð 4. afgreiðslufundar sem haldinn var 19.júní sl lögð fram í samræmi við 3.gr. viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

17.1 - 1905049 - Rjúpnahæð 11 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Hæða (Bæjargil II.áfangi) sem gerir ráð fyrir 29 m2 smáhýsi á baklóð, utan byggingareits.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslags og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum Rjúpnahæðar 8,9, 10, 11,12 og 13.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

17.2 - 1906036 - Rjúpnahæð 13 -Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Hæða sem gerir ráð fyrir um 90 m2 viðbyggingu á baklóð, utan byggingareits.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslags og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum Rjúpnahæðar 10, 11, 12, 14 og 15.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

17.3 - 1905258 - Smáraflöt 11 -Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að viðbyggingu við íbúðarhús sem er styttri en tillaga sem lögð var fyrir skipulagsnefnd og er nú innan byggingarreits. Húshlið er brotin upp með inngarði fyrir miðjum byggingarreit.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingun á deiliskipulagi Flata þar sem að meira en 7,5 m af byggingunni eru á lóðarmörkum og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Smáraflatar 9, 10, 12, 13, 14, 41 og 43.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

17.4 - 1810324 - Smáraflöt 11 - Umsókn um byggingarleyfi

Sjá bókun við lið 3.

17.5 - 1810085 - Beiðni um samstarf við að reisa girðingu við Unnargrund

Lögð fram umsókn um leyfi til að reisa skjól- og hljóðvarnargirðingar sem er að hluta utan lóðarmarka raðhúsalengjunnar Unnargrund 1-9.
Með vísan í viðmiðunarreglur byggingarfulltrúa um hæð léttra veggja á lóðarmörkum að opnum svæðum og greinar 1.8. í deiliskipulagsskilmálum gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að skjól-og hljóðvarnargirðingar verði reistar að hluta á milli lóðarmarka og gangstéttar.

17.6 - 1906101 - Smiðsbúð 7 - dsk breyting Búða

Skipulagstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Iðnbúðar og Smiðsbúðar og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslagar nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Smiðsbúð 5,8, 9, 10 og 12 og Iðnbúð 4,6 og 8.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

17.7 - 1805161 - Haukanes 10 -Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness að lokinni grenndarkynningu. Með vísan í 3.ml.3.mgr.41.gr.Skipulags-og byggingarlaga nr.123/2010 skoðast tillagan því samþykkt og verður send Skipulagsstofnun sem breyting deiliskipulags Arnarness.

17.8 - 1806394 - Lambhagi 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu einbýlishússins að Lambhaga 5 að lokinni grenndarkynningu skv. 44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Engar athugasemdir bárust Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.

Málsnúmer 1907001F

18

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 5

Fundargerð 5. afgreiðslufundar sem haldinn var 3.júlí sl lögð fram í samræmi við 3.gr. viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

18.1 - 1906220 - Dýjagata 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Skipulagsstjóri gerir ekki athuagsem við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá ákvæði deiliskipulags hvað þetta atriði varðar sbr.3.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

18.2 - 1906055 - Kinnargata 10-12 - Veggir - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Svar skipulagsstjóra við fyrirspurn er það sama og fram kemur í umsögn deiliskipulagshöfundar dags 28.júní 2019.

18.3 - 1906043 - Víðilundur 1 -Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir byggingarleyfisumsóknar þar sem að allir þeir sem grenndarkynning náði til hafa staðfest með undirritun sinni að þeir geri ekki athugasemdir við að byggingarleyfi verði veitt.
Með vísan í 44.gr.skipulagslaga nr.123/2010 gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

18.4 - 1905257 - Dýjagata 8 - svalir -frávik deiliskipulag - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Lagðir fram uppdrættir sem sýna umrædda breytingu og þar sem að þeir sem grenndarkynning nær til hafa lýst því yfir með að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna. Í samræmi við 3.mgr.44.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 skoðast tillagan því samþykkt og skal senda Skipulagsstofnun breytinguna og birta auglýsingu um gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við í samræmi við 2.mgr.43.gr. sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

18.5 - 1905049 - Rjúpnahæð 11 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hæðahverfis (Bæjargils II.áfanga) sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Lagðir fram uppdrættir sem sýna umrædda breytingu og þar sem að þeir sem grenndarkynning nær til hafa lýst því yfir með að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna. Í samræmi við 3.mgr.44.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 skoðast tillagan því samþykkt og skal senda Skipulagsstofnun breytinguna og birta auglýsingu um gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við í samræmi við 2.mgr.43.gr. sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.

18.6 - 1903162 - Endurskoðun Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024

Lagt fram erindi Kópavogs vegna verkefnislýsingar og álit aðalskiplagsráðgjafa sem fram kemur í tölvupósti dags 30.júní.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við lýsinguna.

18.7 - 1906197 - Hegranes 26 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að breytingu á núverandi íbúðarhúsi sem gerir ráð fyrir lengingu nústandandi bifreiðargeymslu sem er að hluta utan byggingarreits í samræmi við veitt byggingarleyfi 4.ágúst 1965. Lengd bílageymslu í dag er 7,6 m en verður 11,73 m.
Fyrir liggur samþykki eiganda aðliggjandi lóðar Hegranes 24.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði heimilað að vikið verð frá kröfum 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem að um óverulegt frávik er að ræða.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.