Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 1-3.

Málsnúmer 1902376

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

41. (1902). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum fjölgi úr 20 í 24 á hvorri lóð eða um 8 íbúðir alls.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 848.863 á íbúð m.v. BVT 733,2 stig í október 2019 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Austurhluta að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarráð Garðabæjar

03

26. (1887). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um fjórar í hvoru húsi eða samtals átta íbúðir á lóðinni við Maríugötu 1-3.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 847.357 á íbúð m.v. BVT 731,9 stig í júlí 2019 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lagt fram erindi lóðarhafa þar sem óskað er eftir fjölgun íbúða ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar dags 28.júní sem Urriðaholt ehf tekur undir. Í umsögn kemur fram það álit að hægt verði að fjölga íbúðum svo vel fari miðað við tillögur umsækjanda um fjölgun bílastæða á lóð.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sbr.1.mgr.43.gr.sömu laga.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

9. fundur

Lögð fram umsókn lóðarhafa um deiliskipulagsbreytingu fjölbýlishúsalóðanna Maríugata 1 og Maríugata 3 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um 4 í hvoru húsi, alls 8.
Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagshöfunda.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

3. fundur

Lagt fram erindi frá lóðarhöfum Maríugötu 1 og 3 þar sem óskað er eftir fjölgun íbúða úr 20 í 26 í hvoru húsi. Ekki er óskað eftir auknu byggingarmagni.
Málinu vísað til umsagnar deiliskipulagshöfunda og Urriðaholts ehf. Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.