41. (1902). fundur
41. (1902). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
29.10.2019
Kl. 08:00 - 08:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1904109
01
Frumvarp að fjárhagsáætlun 2020 (2020-2023).
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020 og árin 2021 - 2023, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti. Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2019 eru: Heildartekjur 17.361.334 þkr. Heildargjöld 15.951.072 þkr. Niðurstaða án fjármagnsliða 1.410.262 þkr. Fjármunatekjur (gjöld) (844.018) þkr. Rekstrarniðurstaða 566.243 þkr.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023) til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð fimmtudaginn 7. nóvember 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1904109
02
Tillaga um álagningarhlutfall útsvars á árinu 2020.
Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningarhlutfall útsvars á árinu 2020.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2020 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2019 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga."
Bæjarráð vísar tillögu um álagningarhlutfall útsvars á árinu 2020 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1909198
03
Blikanes 23 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Önnu Júlíusdóttur, kt. 120360-3889, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús að Blikanesi 23.
Málsnúmer 1906190
04
Hraungata 23 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hafsteini ehf., kt. 411069-0289, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 13 íbúðum að Hraungötu 23.
Málsnúmer 1907131
05
Víkurgata 6 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bárði Sigurgeirssyni, kt. 131155-3369, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Víkurgötu 6.
Málsnúmer 1910263
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn Skógræktarfélags Garðabæjar um lagningu útivistarstíga í Hádegisholti.
Lögð fram.
Málsnúmer 1902376
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 1-3.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar. Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum fjölgi úr 20 í 24 á hvorri lóð eða um 8 íbúðir alls.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 848.863 á íbúð m.v. BVT 733,2 stig í október 2019 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1910154
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi aðalskipulag Reykjavíkur - færsla Korpulínu.
Lögð fram.
Málsnúmer 1910306
09
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (íbúakosningar um einstök mál), 49. mál., dags. 22.10.19.
Málsnúmer 1910303
10
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um jarðalög (forkaupsréttur sveitarfélaga), 29. mál., dags. 22.10.19.
Málsnúmer 1910301
11
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi gjaldskrá, dags. 18.10.19.
Bæjarráð vísar gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1910288
12
Bréf Kvennaathvarfsins um rekstrarstyrk, dags. 20.10.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1910322
13
Bréf húsfélagsins við Strikið 2-12 um styrk vegna uppsetningar hleðslubúnaðar fyrir rafbíla, dags. 16.10.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði og til umfjöllunar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1910305
14
Tilkynning frá Minjastofnun varðandi styrkumsókn til Húsafriðunarsjóðs, dags. 22.10.19.
Málsnúmer 1910302
15
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í tilefni vörukynningar í Costco Kauptúni 3.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.