Molduhraun, endurskoðun deiliskipulags.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
12. (852). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar um endurskoðun á deiliskipulagi Molduhrauns. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. og bárust engar athugasemdir.
Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagið með eftirfarandi breytingu við auglýsta tillögu.
Svæði deiliskipulagsins norðan lóðanna við Vesturhraun 1, 3 og 5 minnkar sem nemur breidd aðalstígs sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi fólkvangsins Garðahrauns efra.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
03
33. (1894). fundur
Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um endurskoðun á deiliskipulagi Molduhrauns. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr 1. mgr. 41. gr. og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til eftirfarandi breytingar við auglýsta tillögu.
Svæði deiliskipulagsins norðan lóðanna við Vesturhraun 1, 3 og 5 minnkar sem nemur breidd aðalstígs sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi fólkvangsins Garðahrauns efra.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
12. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Molduhrauns ásamt umsögnum Vegagerðarinnar og Hafnarfjarðarbæjar. Engar almennar athugasemdir voru gerðar við auglýsta tillögu.
Hafnarfjarðarbær gerir ekki athugasemd við tillöguna en Vegagerðin bendir á að huga þurfi að stofnstígum,veghelgundarsvæði stofnbrauta, hæðarmun á fyrirhugaðri framlengingu Álftanesvegar og bygginga við Suðurhraun og stöðu veghalds á framlengingu Álftanesvegar.
Skipulagsnefnd telur að tillagan taki fullt tillit til stígakerfis aðalskipulags og svæðisskipulags með því að gera ráð fyrir stofnstígum meðfram Reykjanesbraut við Austurhraun og þvert í gegnum hverfið við Miðhraun.
Veghelgunarsvæði verði sýnt á uppdrætti bæði fyrir Reykjanesbraut og framlengingu Álftanesvegar.
Kennisniði í gegnum fyrirhugaða framlengingu Álftanesvegar og aðliggjandi hús verði bætt við sem skýringarmyndum í greinargerð.
Skipulagsnefnd telur eðlilegt að fyrirhuguð framlenging Álftanesvegar sem skilgreind er sem stofnbraut í aðalskipulagi sé á þjóðvegaskrá og því á forræði Vegagerðarinnar. Að svo stöddu leggur nefndin ekki til að gerðar verði breytingar á þeim tengingum sem tillagan og það deiliskipulag sem í gildi er gera ráð fyrir. En nauðsynlegt er að taka af allan vafa um stöðu veghalds fyrirhugaðrar stofnbrautar en niðurstaða þeirra samræðu gæti kallað á breytingar á deiliskipulaginu. Skipulagsnefnd telur að nóg svigrúm sé til staðar fyrir tvær akbrautir í hvora átt á framlengingu Álftanesvegar í deiliskipulagstillögu.
Skipulagsnefnd leggur einnig til að deiliskipulagssvæði norðan lóðanna Vesturhraun 1,3 og 5 minnki sem nemi breidd aðalstígs sem gert verði ráð fyrir í deiliskipulagi fólkvangsins Garðahrauns efra á þeim stað sbr.fundarlið nr.3.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum lagfæringum sem nýtt deiliskipulag fyrir Molduhraun í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Eldra deiliskipulag Molduhrauns fellur úr gildi við gildistöku hins nýja deiliskipulags.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi Molduhrauns ásamt umsögn Vegagerðarinnar. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
10. fundur
Tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi Molduhrauns að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust en umsagnir sem óskað var eftir hafa enn ekki borist. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
8. (848). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa endurskoðað deiliskipulag fyrir Molduhraun samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
08
18. (1879). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa endurskoðað deiliskipulag fyrir Molduhraun samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
8. fundur
Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi Molduhrauns.
Þær breytingar sem gerðar eru frá gildandi deiliskipulagi eru:
-Hámarksnýtingarhlutfall lóða hækkar úr 0.6 í 0.8
-Hámarksflötur bygginga á lóð hækkar úr 40% í 50%
-Auk 1 bílastæðis á hverja 50 fermetra atvinnuhúsnæðis eins og gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir verður heimilað að 1 bílastæði verði á hverja 35 fermetra verslunarhúsnæðis og 150 fermetra geymsluhúsnæðis
-Heimilað verður að lóðin Vesturhraun 1 stækki vegna breytinga á bæjarmörkum og lóðirnar Vesturhraun 3 og 5 stækki vegna aðlögunar að jaðri raskaðs svæðis í hrauninu vestan og norðan við lóðirnar.
-Gert verður ráð fyrir nýrri lóð Garðahrauni 1 þar sem áður var gert ráð fyrir óbyggðu svæði.
-Tillagan gerir auk þess ráð fyrir ýmsum uppfærslum og aðlögunar á deiliskipulagsgreinargerð sem komin er til ára sinna.
- Tenging við Garðahraun efra á móts við Vesturhraun 5 verði felld út
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
10
7. (847). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir m.a. gerir ráð fyrir nýrri lóð við Garðahraun 1, hækkun nýtingahlutfalls o.fl. verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á almennum fundi, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
11
16. (1877). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir m.a. gerir ráð fyrir nýrri lóð við Garðahraun 1, hækkun nýtingahlutfalls o.fl. verði kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á almennum fundi, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
6. fundur
Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi Molduhrauns. Tillaga gerir m.a. ráð fyrir breytingum á nýtingarhlutfalli sem breytist úr 0,6 í 0,8, á hámarki byggðum fleti úr 40 % í 50 % og ákvæð um bílastæði sem áður var 1 bílastæði á 50 m2 fyrir allt húsnæði.
Nú er gert ráð fyrir 1 stæði á 50 m2 í atvinnuhúsnæði, 35 m2 á verslunar-og skrifstofuhúsnæði og 150 m2 á geymsluhúsnæði.
Tillagan gerir ráð fyrir nýrri lóð, Garðahrauni 1 á áður óbyggðu svæði við bæjarmörk að Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir stækkunum á lóðunum Vesturhraun 1, 3 og 5.
Tillögu vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.greinar Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi þann 6.maí næstkomandi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
13. (835). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar nýjan og uppfærðan uppdrátt deiliskipulags fyrir Molduhraun.
Fundargerðin sem er 27 tl. er samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
14
34. (1849). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar nýjan uppdrátt deiliskipulags fyrir Molduhraun.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
11. fundur
Lagður fram uppfærður deiliskipulagsuppdráttur fyrir Molduhraun þar sem allar deiliskipulagsbreytingar sem gerðar hafa verið frá upphafi eru samankomnar.
Skipulagsnefnd vísar uppdrættinum til auglýsingar sem nýjum deiliskipulagsuppdrætti Molduhrauns. Deiliskipulagsskilmálar eru óbreyttir frá því sem nú er og halda áfram gildi sínu.