11. fundur
11. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
17.09.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1710083
01
Lyngássvæði, deiliskipulag L1 og L2
Skipulagsráðgjafar, Sigurður Einarsson arkitekt og Þráinn Hauksson landlagsarkitekt ásamt fulltrúum lóðarhafa Stóráss 2-4, Mótás Garðabær ehf, þeir Bergþór Jónsson og Pétur Hannesson kynna drög að deiliskipulagi ásamt skipulagslýsingu fyrir Lyngás, svæði L1 og L2. Drög að tillögu gera ráð fyrir að skipulagðar verði 250-350 íbúðir auk þess sem áfram verði 1.000-2.000 m2 í atvinnuhúsnæði.
Skipulagsnefnd felur ráðgjöfum að vinna tillöguna áfram eins og drögin leggja til enda eru þau í samræmi við áherslu rammaskipulags og stefnu aðalskipulags.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða deiliskipulagslýsingu í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd felur tækni- og umhverfissvið að afla umsagna hjá Skipulagstofnun og öðrum umsagnaraðilum og kynna hana almenningi.
Málsnúmer 1710090
02
Ægisgrund 1-5, dsk br (Svæði L6)
Skipulagsráðgjafar, Sigurður Einarsson arkitekt og Þráinn Hauksson landlagsarkitekt kynna skipulagslýsingu á breytingum á aðal- og deiliskipulagi svæði L6 sbr rammaskipulag Lyngássvæðis ásamt drögum að skipulagi svæðisins. Breytingarnar ná til Ægisgrundar og Þórsmerkur. Viðfangsefni skipulagsins er að skipuleggja stofnanalóð fyrir Alþjóðaskólann auk lítillar stækkunar á íbúðarsvæði Grunda. Þetta verður gert með því að minnka lítillega landnotkunarreit meðfram læknum í Ask Gb. 2016-2030, merktur 2.09 Op og afmarka þann hluta rauðan (2.19 S) undir samfélagsþjónustu. Aðrar breytingar varða stækkun á íbúðarbyggð innan landnotkunarreits 2.10 Íb í Ask Gb. 2016-2030.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða deiliskipulagslýsingu í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur tækni- og umhverfissviði að afla umsagna hjá Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum ásamt því að kynna hana almenningi.
Málsnúmer 1809192
03
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 2. Grundir
Skipulagsráðgjafar, Sigurður Einarsson arkitekt og Þráinn Hauksson landlagsarkitekt kynna skipulagslýsingu aðal- og deiliskipulags fyrir Lyngás, svæði L6, Ægisgrund og Þórsmörk ásamt drögum að skipulagi svæðisins. Viðfangsefni skipulagslýsinga er að skipuleggja stofnanalóð fyrir Alþjóðaskólann auk lítillar stækkunar á íbúðarsvæði Grunda. Þetta verður gert með því að minnka lítillega landnotkunarreit meðfram læknum í Ask Gb. 2016-2030, merktur 2.09 Op og afmarka þann hluta rauðan (2.19 S) undir samfélagsþjónustu. Aðrar breytingar varða stækkun á íbúðarbyggð innan landnotkunarreits 2.10 Íb í Ask Gb. 2016-2030.
Skipulagsnefnd samþykkir aðalskipulagslýsinguna í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur tækni- og umhverfissviði að afla umsagna hjá Skipulagsstofnun og öðrum umsagnaraðilum ásamt því að kynna hana almenningi á kynningartíma.
Málsnúmer 1712067
04
Breiðholt Garðahverfi, fyrirspurn um dsk breytingu
Lögð fram öðru sinni fyrirspurn eigenda Breiðholts um hugmynd að breytingum á deiliskipulagsákvæðum fyrir þá tvo byggingarreiti sem deiliskipulagið gerir ráð fyrir við býlið.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Málsnúmer 1703099
05
Höll á Garðaholti, breyting á dsk Garðahverfis
Lögð fram öðru sinni tillaga Hólmfríðar Sigurðardóttur Þorkelssonar í Grænagarði og Ágústs Þórs Gunnarssonar að deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Garðahverfis þar sem gert er ráð fyrir stækkun deiliskipulagssvæðis sem nemur um einum hektara utan við Grænagarð efst á Garðaholti. Bætt yrði við býlinu Höll sem áður stóð á þessum stað sem eitt af þeim býlum sem deiliskipulagið nær til. Þar yrði gert ráð fyrir þremur byggingarreitum eins og við önnur bæjarstæði þar sem bæjarhús eru horfin.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Málsnúmer 1808061
06
Nýibær 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir tvö smáhýsi fyrir ferðaþjónustu á túninu sunnan við heimreiðina að Nýjabæ.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
Málsnúmer 1804129
07
Bæjargarður, dsk br
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Bæjargarðs að lokinni auglýsingu sem fram fór 26. júlí til 6. september. Einnig eru lagðar fram innsendar athugasemdir, alls bárust níu athugasemdir.
Skipulagsnefnd vísar málinu til tækni- og umhverfissviðs til nánari úrvinnslu.
Málsnúmer 1709142
08
Kauptún 1, skilti Hyundai
Lagt fram erindi Hyundai þar sem óskað er eftir leyfi til þess að reisa þrjú skilti á lóðinni Kauptún 1. Lagðar fram reglur um merkingar í Kauptúni sem samþykktar hafa verið af rekstrarfélagi Kauptúns. Einnig lögð fram umsögn rekstarfélagsins um umsókn Hyundai.
Skipulagsnefnd tekur undir þau atriði sem koma fram í umsögninni:
Skilti merkt 1 kallar á deiliskipulagsbreytingu en sé í samræmi við reglur rekstsrarfélagsins.
Skilti merkt 3 sé í samræmi við reglur rekstrarfélagsins (L2-skilti)og kalli ekki á deiliskipulagsbreytingu.
Skilti merkt 2 sé ekki í samræmi við reglur rekstrarfélagsins (K-merkingar) vegna legu sinnar nærri lóðarmörkum. Ef það verður fært innar á lóð verði það í samræmi við reglur og kalli ekki á deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagsnefnd metur staðsetningu á skilti merkt 1 sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns og vísar tillögunni til grenndarkynningar. Grenndarkynning nái til allra lóðarhafa og rekstraraðila í Kauptúni. Ef áritað samþykki allra þeirra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir er skipulagstjóra heimilt að stytta tíma grenndarkynningar.
Málsnúmer 1405080
09
Kjarrmóar, endurskoðað deiliskipulag
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir stöðu vinnu við gerð deiliskipulags Kjarrmóa.
Skipulagsstjóri leggur til að skipulagssvæðið verði stækkað sem nemur Lyngmóum og Hrísmóum og verði nefnt deiliskipulag Móa.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra.
Málsnúmer 1501085
10
Gilsbúð 9,br á dsk Bæjargils
Lagt fram erindi lóðarhafa þar sem óskað er eftir því að deiliskipulagi verði breytt þannig að unnt verði að byggja 700 m2 viðbyggingu í norðvesturhluta lóðar og tengja við núverandi byggingar.
Lóðin var stækkuð til norðurvesturs fyrir fjórum árum með deiliskipulagsbreytingu og byggingarreitur stækkaður sem nemur 100 fermetrum.
Skipulagsnefnd telur að aukið byggingarmagn í átt að Arnarneslæk rýri gildi opna svæðisins og hafnar því tillögunni.
Málsnúmer 1805222
11
Hrauntunga - Tillaga að uppbyggingu á lóð
Lagt fram erindi lóðarhafa að Hrauntungu við Garðahraunsveg (gamla Álftanesveginn) þar sem leitað er álits Garðabæjar á þeirri tillögu að núverandi hús verði fjarlægt og í stað þess byggt 1000 m2 hús sem verði nýtt til útleigu fyrir ferðamenn.
Skipulagsnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við áform húseiganda um niðurrif hússins en telur rétt að varðveislugildi hússins verði metið áður en til þess kemur.
Við hönnun nýbyggingar ber að gæta þess að byggingin sé í samræmi við ákvæði skilmála deiliskipulags Garðahrauns þar sem lögð er áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og að byggingar falli vel að umhverfi sínu.
Varðandi stærð á fyrirhugaðri byggingu þarf að huga ákvæðum í skipulagsskilmálum um nýtingarhlutfall en á mæliblöðum koma m.a. fram upplýsingar um stærðir lóða, lóðarmörk og byggingarreiti húsa.
Skipulagsnefnd bendir á að í deiliskipulagskilmálum er skipulagsvæðið skilgreint sem íbúðarhúsabyggð. Öll atvinnustarfsemi og -rekstur, sem leiðir af sér umferðaraukningu um húsagötur eða ónæði er óheimil, nema með samþykki bæjarstjórnar.
Baldur Svavarsson situr hjá við samþykkt bókunar.
Málsnúmer 1808122
12
Holtsvegur 43 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu á eignarhaldi rýma í húsi þannig að tæknirými breytist í sérnotageymslu íbúðareignar í húsinu. Sameiginleg stærð íbúðar og geymslurýma.
Í ljósi málsatvika gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að umrædd breyting verði metin sem óverulegt frávik við veitingu byggingarleyfis.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir víkur af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1809189
13
Skipulag - Molduhraun deiliskipulag
Lagður fram uppfærður deiliskipulagsuppdráttur fyrir Molduhraun þar sem allar deiliskipulagsbreytingar sem gerðar hafa verið frá upphafi eru samankomnar.
Skipulagsnefnd vísar uppdrættinum til auglýsingar sem nýjum deiliskipulagsuppdrætti Molduhrauns. Deiliskipulagsskilmálar eru óbreyttir frá því sem nú er og halda áfram gildi sínu.
Málsnúmer 1809116
14
Skipulag - nýtt starfssvæði Björgunar á Álfsnesi. Drög að tillögu að matsáætlun
Drög að tillögu að matsáætlun vegna nýs starfssvæðis Björgunar í Álfsnesvík er lögð fram. Gert er ráð fyrir að starfsemin á nýjum stað rúmist á um það bil 10 ha svæði sem verði að hluta á landfyllingu og að hluta á landi. Á svæðinu þarf að vera viðlegukanntur fyrir skip, pramma og önnur efnisflutningaskip og áætlað er að verði að svæðinu frá Víðisnesvegi. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna á þessu stigi málsins.