Nýibær 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
14. (836). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir byggingarreitum fyrir smáhýsi við Nýjabæ.
Bæjarráð Garðabæjar
02
37. (1852). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir byggingarreitum fyrir smáhýsi við Nýjabæ.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Lögð fram tillaga ábúenda á Nýjabæ 2 um staðsetningu tveggja smáhýsa á túninu sunnan heimreiðar að Nýjabæ sem eru ætluð undir ferðaþjónustu.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem fram kemur að ekki er mælt með tillögunni þar sem að deiliskipulagið gerir m.a. ekki ráð fyrir svo stórum smáhýsum auk þess sem staðsetning þeirra á túninu er ekki í samræmi við það markmið deiliskiulagsins að hnappsetja byggðina nærri upprunalegum bæjarhúsum.
Skipulagsnefnd hafnar tillögunni með vísan í framlagða umsögn.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir tvö smáhýsi fyrir ferðaþjónustu á túninu sunnan við heimreiðina að Nýjabæ.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til umsagnar deiliskipulagshöfundar.