14. (836). fundur
14. (836). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
18.10.2018
Kl. 17:00 - 19:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 4. október 2018 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1810013F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 9/10 ´18.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi ályktun til samþykktar.
,,Bæjarstjórn Garðabæjar gagnrýnir harðlega þær tillögur að samgönguáætlun sem nú eru til umræðu á Alþingi, bæði tillögu um fimm ára samgönguáætlun 2019-2023 og tillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2019-2033.
Það er óásættanlegt að ekki sé gert ráð fyrir meira fjármagni til nýframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu til að leysa og létta á umferðarþunga á þessu svæði.
Samkvæmt ástandsgreiningu starfshóps SSH og ríkisins frá árinu 2017 fær fjöldi umferðarmannvirkja á höfuðborgarsvæðinu einkunnina F sem þýðir að umferð gangi mjög erfiðlega fyrir sig.
Bæjarstjórn Garðabæjar mótmælir því að í tillögu að samgönguáætlun 2019-2023 sem nú liggur fyrir sé ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni til framkvæmda við gatnamót Hafnarfjarðarvegar ogVífilsstaðavegar né gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss en bæði gatnamótin fá þjónustustig F í ástandsgreiningunni auk þess sem umferðaröryggi þar er verulega ábótavant.
Í tillögu að samgönguáætlun 2019-2033 er stokkur undir Hafnarfjarðarveg í Garðabæ tímasettur á tímabilinu 2029-2033 og þá einungis með helmingi þess framlags sem áætlað er að framkvæmdin kosti.
Bæjarstjórn Garðabæjar mótmælir því að svo brýn framkvæmd sé látin sitja á hakanum og leggur mikla áherslu á að framkvæmdin sé færð framar í samgönguáætlun.
Tveir þriðju hluti landsmanna búa á höfuðborgarsvæðinu og á hverju ári koma rúmlega tvær milljónir ferðamanna til landsins sem flestir fara í gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ og Kópavog á leið sinni til og frá landi.
Bæjarstjórn Garðabæjar hvetur ráðherra og þingmenn til þess að forgangsraða fjármagni í samgönguáætlun þar sem hún nýtist flestum og þörfin er brýn. Óbreytt ástand er ólíðandi."
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framlagða tillögu og lýsti yfir stuðningi við hana. Þá ræddi Sara Dögg, 5. tl., bréf Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum foreldrum.
Ingvar Arnarson, ræddi 9. tl. bréf Bjargs íbúðafélags varðandi samstarf um uppbyggingu almennra íbúða og 17. tl., heimsóknir i stofnanir. Þá ræddi Ingvar 5. tl., og minnti á tillögu sína um skráningu lögheimilis.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 16. tl. starfsáætlanir sviða.
Gunnar Einarsson, ræddi framlagða ályktun og fjallaði um viljayfirlýsingu varðandi samstarf SSH og ríkisins um úrbætur í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Gunnar ræddi 9. tl., bréf Bjargs íbúðafélags varðandi samstarf um uppbyggingu almennra íbúða og 16. tl., starfsáætlanir sviða.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl. bréf Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum foreldrum og 16. tl., starfsáætlanir sviða.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 16. tl., starfsáætlanir sviða.
Gunnar Einarsson, ræddi 9. tl., bréf Bjargs íbúðafélags varðandi samstarf um uppbyggingu almennra íbúða.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 16. tl., starfsáætlanir sviða.
Ályktun varðandi forgangsröðun til brýnna framkvæmda í samgönguáætlun samþykkt samhljóða.
Fundargerðin, sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1810031F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 16/10 ´18.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 17. tl., bréf Hjalla varðandi tilfærslu á starfsdögum leikskóla.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 17. tl., bréf Hjalla varðandi tilfærslu á starfsdögum leikskóla.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., 3. tl., og 4. tl., afgreiðslur skipulagsnefndar varðandi umsóknir um breytingar á deiliskipulagi Garðahverfis.
Almar Guðmundsson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs vegna lýsingar íþróttavallar, 12. tl., bréf UMF Stjörnunnar varðandi umhverfi Stjörnutorgs og 13. tl., bréf Stjörnunnar varðandi vökvunarkerfi fyrir Stjörnuvöll.
Fundargerðin sem er 19 tl., er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1810019F
03
Fundargerð skipulagsnefndar frá 11/10 ´18.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 6. tl., umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna
bygginga á lóðum og almennt um skipulagsmál.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 6. tl., umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna
bygginga á lóðum og almennt um skipulagsmál.
Sigurður Guðmundsson ræddi 6. tl., umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna
bygginga á lóðum og almennt um skipulagsmál.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna
bygginga á lóðum og almennt um skipulagsmál.
Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna
bygginga á lóðum og almennt um skipulagsmál.
Sigurður Guðmundsson, ræddi að nýju 6. tl., umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna
bygginga á lóðum og almennt um skipulagsmál.
Gunnar Einarsson, ræddi að nýju 6. tl., umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna
bygginga á lóðum og almennt um skipulagsmál.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 6. tl., umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna bygginga á lóðum og almennt um skipulagsmál.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1810005F
04
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 10/10 ´18.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., þróunarsjóð grunnskóla og 5. tl., menntadag leik- og grunnskóla.
Jóna Sæmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs og sagði frá hrósi um metnaðarfullt skólastarf í Garðabæ, sem fram kom á fyrirlestri um leiðarljós KVAN (Kærleik, Vináttu, Alúð og Nám).
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., þróunarsjóð grunnskóla.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi um leiðarljós KVAN og almennt um jákvæð gildi þess fyrir skólastarf í Garðabæ.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi um leiðarljós KVAN. Þá ræddi Sigríður Hulda, 4. tl., þróunarsjóð grunnskóla.
Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., forvarnarviku í Garðabæ og 4. tl., þróunarsjóð grunnskóla.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1810003F
05
Fundargerð umhverfisnefndar frá 5/10 ´18.
Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., veiðikortið 2019 og 6. tl., fyrirspurn um stöðu fráveitumála á Álftanesi.
Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., veiðikortið 2019 og 6. tl., fyrirspurn um stöðu fráveitumála á Álftanesi.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 6. tl., fyrirspurn um fráveitumál á Álftanesi og 4. tl., veiðikortið 2019.
Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., veiðikortið 2019 og fjallaði sérstaklega um hornsílin í Vífilsstaðavatni sem eru heimsfræg vegna skorts á kviðgadda.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1810034F
06
Fundargerð ungmennaráðs frá 25/9 ´18.
Björg Fenger, ræddi málefni ungmennaráðs og hvatti bæjarstjórn til að styðja og virkja starfsemi ungmennaráðs í þágu hagsmuna ungs fólks í samfélaginu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi málefni ungmennaráðs og hvatti til þess að ráðið verði boðað á fund bæjarstjórnar.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801362
07
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 3/10 ´18.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., samning við SOS (Sorpstöð Suðurlands) um móttöku úrgangs á Suðurlandi og 3. tl., rekstraráætlun 2019-2023.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi málefni Sorpu og almennt um flokkun sorps.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi málefni Sorpu og almennt um flokkun sorps.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704086
08
Fundargerð 14. eigendafundar Sorpu bs. frá 1/10 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1704087
09
Fundargerð 17. eigendafundar Strætó bs. frá 1/10 ´18.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 og 2. tl., skýrslu um eflingu almenningssamgangna.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1807057
10
Útboð heilsuræktaraðstöðu í Ásgarði
Almar Guðmundsson, gerði grein fyrir niðurstöðu dómnefndar að meta tilboð Sporthallarinnar ógilt og mæla með að leitað verði samninga við Laugar um uppbyggingu aðstöðu fyrir heilsurækt við íþróttamiðstöðina Ásgarð. Almar vísaði til minnisblaðs Andra Árnasonar, lögmanns þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að tilboð Sporthallarinnar feli í sér breytingu frá fyrra stigi í tilboðsferli sem sé veruleg og raski stöðu bjóðenda sem geti ekki annað en leitt til þess að tilboðið teljist í raun ógilt.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Gunnar Einarson, tók til máls og þakkaði dómnefndinni fyrir vönduð og fagleg vinnubrögð við afgreiðslu málsins.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og tók undir orð um vönduð og fagleg vinnubrögð dómnefndar við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu dómnefndar um að leitað verði samninga við Laugar og felur bæjarstjóra að hefja viðræður við félagið um uppbyggingu á aðstöðu fyrir heilsurækt við íþróttamiðstöðina Ásgarð.
Málsnúmer 1810210
11
Tillaga Garðabæjarlistans um eflingu Garðatorgs og vaxtarmöguleika fyrir Hönnunarsafn Íslands.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
,,Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu til eflingar Hönnunarsafns Íslands og styrkingu þjónustu og menningar á Garðatorgi.
Garðabæjarlistinn leggur til að Garðabær hefji viðræður við eigendur fasteignar að Garðatorgi 1, sem hýsir Hönnunarsafn Íslands og áður matvöruverslunina Víði, með það að leiðarljósi að aukið rými skapist fyrir starfsemi Hönnunarsafn Íslands og um leið atvinnutækifæri fyrir rekstur kaffihúss á Garðatorgi."
Greinargerð:
Með því að nýta jarðhæð á fasteigninni sem snýr út að bílastæðum betur, mætti breyta húsnæðinu og skapa tækifæri fyrir kaffihús með mögulegu samstarfi eða tengingu við Hönnunarsafnið. Með nágrenni við hvort annað gætu skapast möguleikar í samstarfi og samlegð sem báðum aðilum væri verðmætt.
Á Garðatorgi er nú þegar fjölbreytt þjónusta og núverandi þjónustuaðilar myndu hagnast af því að þar myndi kaffihús ná að festa rætur. Við sjáum fyrir okkur að með samstarfi við húseigendur að Garðatorgi 1 og í góðu samstarfi við Hönnunarsafn Íslands gæti Garðatorg eflst enn frekar sem þjónustu- og menningarkjarni.
Garðabæjarlistinn telur að Hönnunarsafn Íslands geti leikið lykilhlutverk ásamt kaffihúsi í að efla núverandi verslun og þjónustu á Garðatorgi.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagða tillögu og almennt um starfsemina á Garðatorgi. Sigríður Hulda lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi framlagða tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls að nýju.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, ræddi framlagða tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi framlagða tillögu. Gunnar vakti sérstaklega athygli á að í desember nk. eru liðin 20 ár frá því að skrifað var undir samning um starfsemi Hönnunarsafns Íslands í Garðabæ.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarráðs.
Sigurður Guðmundsson vék af fundi kl 19:04.
Málsnúmer 1810209
12
Tillaga Garðabæjarlistans um bætt umferðaröryggi við Flataskóla.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu
,,Garðabæjarlistinn leggur til að bæjarstjórn feli tækni- og umhverfissviði að bæta umferðaröryggi við Flataskóla með skýrari merkingum og skiltum þar sem við á. Samhliða þessum úrbótum leggur Garðabæjarlistinn til að farið verði í markvissar aðgerðir til að ýta undir gangandi umferð til og frá skóla með t.d. að tryggja öryggi barna og ungmenna þegar farið er yfir þungar umferðagötur með til dæmis gangbrautarvörslu og styðja þannig um leið við samning um heilsueflandi samfélag í sínum víðasta skilningi."
Greinargerð:
Umferðaröngþveiti við Flataskóla hefur verið umkvörtunarefni foreldra sem og starfsfólks skólans að undanförnu. Vandinn lýsir sér í því að fólk virðir ekki umferðarreglur inni á bílaplaninu né við umferðarljósin.
Bílum er ítrekað lagt við hringtorgið sem og á víð og dreif á bílaplani við skólann til þess að koma börnum í skólann. Mikil hætta skapast vegna þessa á hverjum morgni þar sem umferðaröryggi er ekki tryggt eins og kostur er.
Samhliða þessu mætti fylgja fordæmi við Álftaneskóla og vera með gangbrautarstarfsfólk sem aðstoðar börn sem koma gangandi eða hjólandi til skóla og eykur töluvert öryggi um leið. Eins má benda á að sumir skólar hafa tekið upp á því að vera með starfsmenn á morgnana við skólann til að auka öryggi barna á leið í skólann.
Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Ingvar Arnarson, ræddi framlagða tillögu.
Almar Guðmundsson, ræddi framlagða tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarráðs.
Málsnúmer 1810221
13
Tillaga Garðabæjarlistans um skýra verkferla varðandi styrkveitingar.
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
,,Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu þess efnis að Garðabær setji fram skýra verkferla varðandi styrkveitingar úr bæjarsjóði, verkferla sem nefndir á vegum Garðabæjar geta fylgt þegar kemur að styrkveitingum sem ekki teljast til lögbundinna hlutverka sveitarfélaga. Einnig er lagt til að allar styrkveitingar séu aðgengilegar í opnu bókhaldi bæjarins."
Greinagerð:
Með því að setja skýra verkferla á styrkveitingum og að útbúa gagnagrunn til að halda utan um allar styrkveitingar sem bæjarfélagið veitir verður auðveldara fyrir bæjarfulltrúa og nefndarmenn að fylgjast með og sjá hvað Garðabær er að styrkja. Einnig er mikilvægt að íbúar Garðabæjar hafi aðgang að þessum upplýsingum. Með aukni gagnsæi kemur einnig aukið aðhald.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi framlagða tillögu.
Ingvar Arnarson, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu og fór almennt yfir meðferð á styrkbeiðnum og veitingu styrkja. Gunnar lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarráðs.