Tillaga Garðabæjarlistans um eflingu Garðatorgs og vaxtarmöguleika fyrir Hönnunarsafns Íslands.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
38. (1853). fundur
Tillagan var lögð fram á fundi bæjarstjórnar 18. október sl. og vísað til bæjarráðs.
Bæjarstjóri upplýsti að forsvarsmenn Regins ehf. eiganda húsnæðis að Garðatorgi 1 hafa verið boðaðir á fund bæjarráðs þriðjudaginn 30. október nk.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
14. (836). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
,,Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu til eflingar Hönnunarsafns Íslands og styrkingu þjónustu og menningar á Garðatorgi.
Garðabæjarlistinn leggur til að Garðabær hefji viðræður við eigendur fasteignar að Garðatorgi 1, sem hýsir Hönnunarsafn Íslands og áður matvöruverslunina Víði, með það að leiðarljósi að aukið rými skapist fyrir starfsemi Hönnunarsafn Íslands og um leið atvinnutækifæri fyrir rekstur kaffihúss á Garðatorgi."
Greinargerð:
Með því að nýta jarðhæð á fasteigninni sem snýr út að bílastæðum betur, mætti breyta húsnæðinu og skapa tækifæri fyrir kaffihús með mögulegu samstarfi eða tengingu við Hönnunarsafnið. Með nágrenni við hvort annað gætu skapast möguleikar í samstarfi og samlegð sem báðum aðilum væri verðmætt.
Á Garðatorgi er nú þegar fjölbreytt þjónusta og núverandi þjónustuaðilar myndu hagnast af því að þar myndi kaffihús ná að festa rætur. Við sjáum fyrir okkur að með samstarfi við húseigendur að Garðatorgi 1 og í góðu samstarfi við Hönnunarsafn Íslands gæti Garðatorg eflst enn frekar sem þjónustu- og menningarkjarni.
Garðabæjarlistinn telur að Hönnunarsafn Íslands geti leikið lykilhlutverk ásamt kaffihúsi í að efla núverandi verslun og þjónustu á Garðatorgi.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagða tillögu og almennt um starfsemina á Garðatorgi. Sigríður Hulda lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi framlagða tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls að nýju.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, ræddi framlagða tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, ræddi framlagða tillögu.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi framlagða tillögu. Gunnar vakti sérstaklega athygli á að í desember nk. eru liðin 20 ár frá því að skrifað var undir samning um starfsemi Hönnunarsafns Íslands í Garðabæ.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarráðs.
Sigurður Guðmundsson vék af fundi kl 19:04.