Beint í efni

38. (1853). fundur

23.10.2018
Bæjarráð Garðabæjar

38. (1853). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

23.10.2018

Kl. 08:00 - 08:50

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1808388

01

Ásbúð 61 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Eddu J. Einarsdóttur, kt. 051258-3989 leyfi til að byggja sólskála við núverandi hús að Ásbúð 61.

Málsnúmer 1810186

02

Bréf Aflsins samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi um rekstrarstyrk, dags. 04.10.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1810230

03

Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um dag nýrra kjósenda, 27. mál., dags. 15.10.18.

Málsnúmer 1807130

04

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Bólstað.

Með bréfi, dags. 25. júlí sl. var íbúum við Marargrund 12, 14, 16, og 18, auk íbúa húsanna Hellu og Markar gefinn kostur á að tjá sig um umsóknina.

Íbúar húsanna við Marargrund 14 og 18 sendu athugasemdir þar sem fram koma mótmæli við starfsemi gististaðar í íbúðahverfi.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1806306

05

Bréf Umhverfisstofnunar varðandi framkvæmdir innan fólkvangsins Hliðs, dags. 15.10.18.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir að fyrirhugaður er fundur með fulltrúum Umhverfisstofnunar 2. nóvember nk. til að ræða úrlausn málsins.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1809156

06

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi lok á eftirfylgni með úttekt á Barnaskóla Hjallastefnunnar, dags. 12.10.18.

Lagt fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1806013

07

Bréf Reykjavíkurborgar varðandi aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Sundahöfn, dags. 15.10.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1810244

08

Bréf Reykjavíkur varðandi aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Miðsvæði M2c-M2g, Múlar- Suðurlandsbraut, dags. 16.10.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1810255

09

Bréf Garðasóknar varðandi viðhaldsframkvæmdir í Kirkjuhvoli og framkvæmdir í kirkjugarði, dags. 18.10.18.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánar skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1810210

10

Tillaga Garðabæjarlistans um eflingu Garðatorgs og vaxtarmöguleika fyrir Hönnunarsafns Íslands.

Tillagan var lögð fram á fundi bæjarstjórnar 18. október sl. og vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjóri upplýsti að forsvarsmenn Regins ehf. eiganda húsnæðis að Garðatorgi 1 hafa verið boðaðir á fund bæjarráðs þriðjudaginn 30. október nk.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1810209

11

Tillaga Garðabæjarlistans um bætt umferðaröryggi við Flataskóla.

Tillagan var lögð fram á fundi bæjarstjórnar 18. október sl. og vísað til bæjarráðs.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir helstu niðurstöðum í skýrslu er unnin var af Eflu um umferðaröryggi skólabarna í Garðabæ. Fram kom að unnið er samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar um aðgerðir til úrbóta.

Bæjarráð felur bæjarverkfræðingi að vinna áfram að aðgerðum til úrbóta til að tryggja umferðaröryggi skólabarna.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1810221

12

Tillaga Garðabæjarlistans um skýra verkferla varðandi styrkveitingar.

Tillagan var lögð fram á fundi bæjarstjórnar 18. október sl. og vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu reglum er gilda um afgreiðslu styrkja hjá menningar- og safnanefnd, íþrótta- og tómstundaráði og bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að taka saman tillögu að leiðbeiningum vegna úthlutunar styrkja.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1806461

13

Fráveita Garðabæjar - áætlun um framkvæmdir.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir stöðu fráveitumála innan bæjarmarkanna. Bæjarverkfræðingur kynnti sérstaklega áætlun VSÓ frá árinu 2012 um úrbætur í fráveitumálum á Álftanesi.

Málsnúmer 1806461

14

Heimsóknir í stofnanir

Farið var í heimsóknir í eftirfarandi stofnanir:

Bæjarból, Álftanesskóli, Íþróttamiðstöðin á Álftanesi, Holtakot og Krakkakot.