Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Bólstað.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
42. (1857). fundur
Bæjarráð vísar til bókunar á fundi 30. október sl. og mælir með að leyfið verði veitt tímabundið til tveggja ára en setur það ekki sem skilyrði fyrir afgreiðslu á umsókn um gistileyfi.
Bæjarráð Garðabæjar
03
39. (1854). fundur
Með bréfi, dags. 25. júlí sl. var íbúum við Marargrund 12, 14, 16, og 18, auk íbúa húsanna Hellu og Markar gefinn kostur á að tjá sig um umsóknina.
Íbúar húsanna við Marargrund 14 og 18 sendu athugasemdir þar sem fram koma mótmæli við starfsemi gististaðar í íbúðahverfi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt en mælir með að leyfið verði veitt til reynslu tímabundið í tvö ár.
Bæjarráð Garðabæjar
04
38. (1853). fundur
Með bréfi, dags. 25. júlí sl. var íbúum við Marargrund 12, 14, 16, og 18, auk íbúa húsanna Hellu og Markar gefinn kostur á að tjá sig um umsóknina.
Íbúar húsanna við Marargrund 14 og 18 sendu athugasemdir þar sem fram koma mótmæli við starfsemi gististaðar í íbúðahverfi.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
06
26. (1841). fundur
Bæjarráð telur rétt áður en veitt er umsögn í málinu að umsóknina verði kynnt fyrir húseigendum við Marargrund 12, 14, 16, og 18 og einnig eigendum húsanna Hellu og Markar. Gefa skal tilgreindum aðilum kost á að tjá sig um umsóknina innan eðlilegs frests.