15. (837). fundur
15. (837). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
01.11.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 18. október 2018 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 23/10 ´18.
Ingvar Arnarson, ræddi 5. tl., bréf Umhverfisstofnunar varðandi framkvæmdir innan fólkvangsins Hliðs og spurði um stöðu mála.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., bréf Umhverfisstofnunar varðandi framkvæmdir innan fólkvangsins Hliðs og svaraði fyrirspurn.
Ingvar Arnarsson, ræddi að nýju 5. tl., bréf Umhverfisstofnunar varðandi framkvæmdir innan fólkvangsins Hliðs.
Gunnar Einarsson, ræddi 5. tl., bréf Umhverfisstofnunar varðandi framkvæmdir innan fólkvangsins Hliðs.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 30/10 ´18.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 11. tl., umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Bólstað og 1. tl., Garðatorg - miðbær, viðræður við forsvarsmenn Regins.
Gunnar Einarson, ræddi 1. tl., Garðatorg - miðbær, viðræður við forsvarsmenn Regins.
Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., bréf UMF Stjörnunnar um leyfi til að nota nafn á körfuboltasalinn í Ásgarði.
Afgreiðsla mála:
2.14 - 1703262 - Tillaga um afturköllun framkvæmdaleyfis vegna lýsingar á íþróttavelli í Bæjargarði.
Bæjarstjórn samþykkir afturköllun á framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu ljósamastra við íþróttavöll í Bæjargarði sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 19. október 2017. Á fundi bæjarstjórnar 18. október sl. var samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs þar sem gerð er nákvæmari grein fyrir uppsetningu mastranna og verður á grundvelli hennar sótt um byggingarleyfi fyrir uppsetningu þeirra.
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl
2.3 - 1707051 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - viðauki 8.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka 8 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Flataskóli 23.300.000
Garðaskóli 31.000.000
Hofsstaðaskóli 34.600.000
Sjálandsskóli 31.000.000
Álftanesskóli 26.500.000
Bæjarból 2.000.000
Hæðaból 2.000.000
Kirkjuból 3.000.000
Lundaból 5.000.000
Sunnuhvoll 5.500.000
Flataskóla - leikskóladeild 300.000
Akrar 6.200.000
Krakkakot 6.100.000
Holtakot 5.000.000
Sumarvinna ungmenna 34.000.000
Bókasafn stöðugildi 2.000.000
Samtals 217.500.000
Varasjóður - lækkun 217.500.000
Fylgiskjöl
2.4 - 1809215 - Samningur við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu byggðar í 1. áfanga austurhluta Urriðaholts.
Bæjarstjórn samþykkir samning við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu samkvæmt deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 16/10 ´18.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., heilsueflingu 65 í Garðabæ og 2. tl., kynningu á rafíþróttaklúbbi í Garðalundi.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., heilsueflingu 65 í Garðabæ og 2. tl. kynningu á rafíþróttaklúbbi í Garðalundi.
Almar Guðmundson, ræddi 1. tl., heilsueflingu 65 í Garðabæ og 2. tl. kynningu á rafíþróttaklúbbi í Garðalundi.
Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 18/10 ´18.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 7. tl., tillögu um hinsegin fræðslu og heilsueflandi samfélag.
Björg Fenger, ræddi 7. tl., tillögu um hinsegin fræðslu og heilsueflandi samfélag.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 29/10 ´18.
Ingvar Arnarson, ræddi tl. 6.1.3 starfsleyfi fyrir niðurifi húsa við Lækjarfit.
Gunnar Einarsson, ræddi sama mál.
Ingvar Arnarson, ræddi málið að nýju.
Gunnar Einarsson, ræddi málið að nýju.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 19/10 ´18.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., tónlistarveislu í skammdeginu og 5. tl., verkefni menningar- og safnanefndar og sagði frá tónleikum Maríu Magnúsdóttur bæjarlistmanns í Safnaðaheimilinu í kvöld. Þá ræddi Gunnar Valur, 7. tl., aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands og 8. tl., tillögu um stofnun sköpunarmiðstöðvar.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerðir stjórnar SSH frá 21/9 og 8/10 ´18.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., fg. frá 8/10 ´18, búsetuúrræði fyrir ungmenni.
Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., fg. frá 8/10 ´18, búsetuúrræði fyrir ungmenni. Þá ræddi Gunnar 1. tl., fg frá 21/9 ´18, viljayfirlýsingu og samkomulag milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., fg frá 21/9 ´18, viljayfirlýsingu og samkomulag milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., fg. frá 8/10 ´18 tilnefningu fulltrúa SSH í stýrihóp um málefni utangarðsfólks
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 12/10 ´18.
Björg Fenger ræddi 6. tl., önnur mál, ráðningar á vegum starfsmannaþjónustu.
Ingvar Arnarson, ræddi 6. tl., önnur mál, tillögu um aukna tíðni ferða á stofnleiðum.
Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 17/10 og 24/10 ´18.
Jóna Sæmundsdóttir ræddi fg. frá 17/10 ´18, 4. tl., endurvinnslu plasts og 5. tl., starfsleyfi fyrir urðunarstað í Álfsnesi
Fundargerðirnar lagðar fram.
12
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 12/10 ´18.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., breytingar á vaxtarmörkum á Álfsnesi.
Fundargerðin lögð fram.
13
Fundargerðir samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 18/9 og 9/10 ´18.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., gjaldskrá skíðasvæða.
Fundargerðirnar lagðar fram.
14
Tillaga að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar - síðari umræða.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Björg Fenger, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls. Gunnar notaði tækifærið og færði Flatskóla hamingjuóskir í tilefni af 60 ára afmæli skólans en hátíðardagskrá fór fram í skólanum í dag á afmælisdegi skólans.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar.
15
Gjaldskrá heilbrigðiseftirlits.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá heilbrigðiseftirlits 2019.
16
Gjaldskrá hundahalds.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrá hundahalds 2019.
17
Frumvarp að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2019 (2019-2022) - fyrri umræða.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2019 - 2022. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.
Bæjarstjóri lagði til að vísa frumvarpinu til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Björg Fenger, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.
Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:
2019 2020 2021 2022
Tekjur: 15.782.121 16.062.121 16.357.121 16.737.121
Gjöld: 14.381.135 14.745.700 15.083.726 15.451.745
Niðurstaða án fjármagnsliða: 1.400.986 1.316.421 1.273.395 1.285.376
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (816.868) (710.226) (656.692) (648.138)
Rekstrarniðurstaða 584.118 606.196 616.703 637.237
Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2019 - 2022 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.