39. (1854). fundur
39. (1854). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
30.10.2018
Kl. 08:00 - 09:25
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1810340
01
Garðatorg - miðbær, viðræður við forsvarsmenn Regins.
Á fund bæjarráðs mættu Helgi Gunnarsson og Páll Bjarnason starfsmenn Regins sem er eigandi atvinnuhúsnæðis við Garðatorg. Kynntu þeir hugmyndir að endurskipulagningu torgsins í samráði við bæjaryfirvöld og aðra hagsmunaaðila á torginu.
Málsnúmer 1806461
02
Frumvarp að fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022).
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2019 og árin 2020 - 2022, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti.
Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2019 eru:
Heildartekjur 15.782.121 þkr.
Heildargjöld 14.381.135 þkr.
Niðurstaða án fjármagnsliða 1.400.986 þkr.
Fjármunatekjur (gjöld) (816.868) þkr.
Rekstrarniðurstaða 584.118 þkr.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2019 (2019-2022) til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013.
Málsnúmer 1707051
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - viðauki 8.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun 2018 en um er að ræða breytingar á launaliðum gunnskóla og leikskóla ásamt breytingu á sumarvinnu ungmenna og breytingu á stöðugildi á bókasafni.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Flataskóli 23.300.000
Garðaskóli 31.000.000
Hofsstaðaskóli 34.600.000
Sjálandsskóli 31.000.000
Álftanesskóli 26.500.000
Bæjarból 2.000.000
Hæðaból 2.000.000
Kirkjuból 3.000.000
Lundaból 5.000.000
Sunnuhvoll 5.500.000
Flataskóla - leikskóladeild 300.000
Akrar 6.200.000
Krakkakot 6.100.000
Holtakot 5.000.000
Sumarvinna ungmenna 34.000.000
Bókasafn stöðugildi 2.000.000
Samtals 217.500.000
Varasjóður - lækkun 217.500.000
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809215
04
Samningur við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu byggðar í 1. áfanga austurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu samkvæmt deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1810172
05
Afgreiðsla leikskólanefndar um erindi Hjallastefnunnar varðandi tilfærslu á starfsdögum leikskóla.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið leikskólanefndar um að mikilvægt er að fylgja leiðararljósi í skólastefnu Garðabæjar þar sem lögð er áhersla á sameiginlega starfsdaga í leik- og grunnskólum til að veita foreldrum og börnum sem bestu þjónustu.
Bæjarráð samþykkir að hafna erindi Hjallastefnunnar um tilfærslu á starfsdögum sem samræmast ekki skóladagatali leik- og grunnskóla Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809269
06
Bréf UMF Stjörnunnar um leyfi til að nota nafn á körfuboltasalinn í Ásgarði, dags. 19.10.18.
Bæjarráð samþykkir beiðni UMF Stjörnunnar um að körfuboltaleikvangur félagsins fái að bera nafnið: Mathús Garðabæjar höllin
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1810320
07
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi ástand þaks fimleikahúss, dags. 24.10.18.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir ástandi á þaki fimleikahússins og sagði frá viðgerðum sem nú þegar hafa farið fram á þakinu til að koma í veg fyrir leka. Fram kom að verið er að vinna að ástandsskoðun þaksins og verður greinargerð um hana lögð fram við afgreiðslu á fjárhagsáætlun.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1810321
08
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi endurnýjun áhalda í fimleikasal, dags. 24.10.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1810287
09
Bréf Snorrasjóðs varðandi stuðning við Snorraverkefnið 2019, dags. 18.10.18.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1810349
10
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi á tónleikum á Garðatorgi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1807130
11
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Bólstað.
Með bréfi, dags. 25. júlí sl. var íbúum við Marargrund 12, 14, 16, og 18, auk íbúa húsanna Hellu og Markar gefinn kostur á að tjá sig um umsóknina.
Íbúar húsanna við Marargrund 14 og 18 sendu athugasemdir þar sem fram koma mótmæli við starfsemi gististaðar í íbúðahverfi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt en mælir með að leyfið verði veitt til reynslu tímabundið í tvö ár.
Málsnúmer 1810338
12
Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um skráningu og mat fasteigna (ákvörðun matsverðs), 212. mál., dags. 25.10.18.
Málsnúmer 1810346
13
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna afnáms um uppreist æru, 222. mál., dags. 25.10.18.
Málsnúmer 1703262
14
Tillaga um afturköllun framkvæmdaleyfis vegna lýsingar á íþróttavelli í Bæjargarði.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afturköllun á framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu ljósamastra við íþróttavöll í Bæjargarði sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar 19. október 2017. Á fundi bæjarstjórnar 18. október sl. var samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs þar sem gerð er nákvæmari grein fyrir uppsetningu mastranna og verður á grundvelli hennar sótt um byggingarleyfi fyrir uppsetningu þeirra.
Málsnúmer 1810286
15
Bréf EBÍ varðandi ágóðahlutagreiðslu 2018, dags. 18.10.18.
Lagt fram bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands þar sem fram kemur að ágóðahluti Garðabæjar árið 2018 er að fjárhæð kr. 1.810.000.