Bréf Hjallastefnunnar um tilfærslu á starfsdögum leikskóla, dags. 14.11.18.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
42. (1857). fundur
Bæjarráð ítrekar bókun frá 30. október sl. um mikilvægi þess að fylgja leiðararljósi í skólastefnu Garðabæjar þar sem lögð er áhersla á sameiginlega starfsdaga í leik- og grunnskólum til að veita foreldrum og börnum sem bestu þjónustu. Bæjarráð samþykkir að hafna erindi Hjallastefnunnar um tilfærslu á starfsdögum sem samræmast ekki skóladagatali leik- og grunnskóla Garðabæjar en getur fallist á að Hjallastefnunni sé heimilt að hafa starfsdag tengdan hauststefnu Hjallastefnunnar þar sem saman koma allir starfsmenn Hjallastefnunnar á sameiginlega ráðstefnu.
Bæjarráð Garðabæjar
03
39. (1854). fundur
Bæjarráð tekur undir sjónarmið leikskólanefndar um að mikilvægt er að fylgja leiðararljósi í skólastefnu Garðabæjar þar sem lögð er áhersla á sameiginlega starfsdaga í leik- og grunnskólum til að veita foreldrum og börnum sem bestu þjónustu.
Bæjarráð samþykkir að hafna erindi Hjallastefnunnar um tilfærslu á starfsdögum sem samræmast ekki skóladagatali leik- og grunnskóla Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Leikskólanefnd Garðabæjar
04
2. fundur
Á fundi leikskólanefndar 18. október var fjallað um erindi Hjallastefnunnar um tilfærslu á starfsdögum, málinu var vísað til umfjöllunar leikskólanefndar frá bæjarráði. Leikskólanefnd bendir á að í skólastefnu Garðabæjar er lögð áhersla á sameiginlega starfsdaga í leik-og grunnskólum til að þjónusta foreldra og börn sem best. Til að tryggja áfram þessa þjónustu leggur nefndin til að skóladagatal leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu verði samræmt.
Bæjarráð Garðabæjar
05