42. (1857). fundur
42. (1857). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
20.11.2018
Kl. 08:00 - 09:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - varamaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1805129
01
Sameiginleg ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk - kynning.
Á fund bæjarráðs mætti Reynir Kristinsson, ráðgjafi frá Nor ehf. og gerði grein fyrir tillögum um fyrirkomulag samstarfs sveitarfélaganna um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í vinnu við undirbúning útboðs á áframhaldandi sameignlegri ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu.
Gunnar Valur Gíslason og Björg Fenger, bæjarfulltrúar sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 - 3.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1707051
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 Viðaukar nr. 9 og 10.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 9 og viðauka nr. 10 við fjárhagsáætlun 2018. Um er að ræða breytingar vegna kostnaðar við sorphreinsun og stofnframlag Sorpu bs. vegna gasgerðarstöðvar samkvæmt viðauka nr. 9 og breytingar á bókhaldsliðum barnaverndar samkvæmt viðauka 10.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 9 og nr. 10 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki nr. 9.
Sorphreinsun kr. 15.000.0000 08-210-4943
Gasgerðarstöð kr. 24.700.0000 08-210-9911
Kostnaðarauka skal mætt með lækkun á varasjóði um 32.500.000 og lækkunar á handbæru fé um 7.200.000.
Varasjóður kr. 32.500.000 31-916-7179
Lækkun á handbæru fé kr. -7.200.000
Viðauki nr. 10.
Barnaverndarnefnd kr. 30.654.855 kr. 9.000.000 02-310
Fóstrun barna utan heimilis kr. 4.200.000 02-330
Úrræði á heimili vegna barna kr. 15.654.855 02-340
Annað vegna barnaverndar kr. 1.600.000 02-350
Persónuleg ráðgjöf og tilsjón kr. 200.000 02-370
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811129
03
Ársreikningur Garðabæjar 2018 - kynning í upphafi endurskoðunar.
Lögð fram kynning endurskoðenda varðandi áherslur við endurskoðun á ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2018.
Stefnt er að því að ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2018 verði tekinn fyrir við fyrri umræðu í bæjarstjórn 21. mars 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811128
04
Tillögur Garðabæjarlistans við frumvarp að fjárhagsáætlun.
Lagðar fram tillögur Garðabæjarlistans frá fundi bæjarstjórnar 15. nóvember sl.
Tillaga um óbreytta gjaldskrá leikskóla og 2,9% hækkun annarra gjalda.
Tillaga um hækkun hvatapeninga að fjárhæð kr. 5.000.
Tillaga um að verja kr. 5.000.000 í verkefni til stuðnings fötluðum börnum og börnum af erlendum uppruna.
Tillaga um endurskoðun á ferðaþjónustu fatlaðs fólks.
Tillaga um gerð áætlunar um kaup á félagslegu húsnæði af uppbyggingaraðilum.
Bæjarráð vísar tillögunum til meðferðar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Málsnúmer 1806461
05
Frumvarp að fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022)
Bæjarráð vísar eftirfarandi gjaldskrám til meðferðar og afgreiðslu við samþykkt fjárhagsáætlunar.
Gjaldskrá fyrir fráveitugjald.
Gjaldskrá fyrir vatnsgjald
Gjaldskrá um sorphirðu.
Gjaldskrá um hreinsun taðþróa.
Gjaldskrá leikskóla
Gjaldskrá tómstundaheimila
Gjaldskrá sundlaugar.
Málsnúmer 1810172
06
Bréf Hjallastefnunnar um tilfærslu á starfsdögum leikskóla, dags. 14.11.18.
Bæjarráð ítrekar bókun frá 30. október sl. um mikilvægi þess að fylgja leiðararljósi í skólastefnu Garðabæjar þar sem lögð er áhersla á sameiginlega starfsdaga í leik- og grunnskólum til að veita foreldrum og börnum sem bestu þjónustu. Bæjarráð samþykkir að hafna erindi Hjallastefnunnar um tilfærslu á starfsdögum sem samræmast ekki skóladagatali leik- og grunnskóla Garðabæjar en getur fallist á að Hjallastefnunni sé heimilt að hafa starfsdag tengdan hauststefnu Hjallastefnunnar þar sem saman koma allir starfsmenn Hjallastefnunnar á sameiginlega ráðstefnu.
Málsnúmer 1807130
07
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Bólstað.
Bæjarráð vísar til bókunar á fundi 30. október sl. og mælir með að leyfið verði veitt tímabundið til tveggja ára en setur það ekki sem skilyrði fyrir afgreiðslu á umsókn um gistileyfi.
Málsnúmer 1808083
08
Umsagnarbeiðni vegna kröfu um afturköllun á rekstrarleyfi. veitingastaðar að Garðatorgi 4.
Fyrir liggur ný hljóðmæling sem framkvæmd var 18. október 2018 til að ákvarða loft- og högghljóðeinangrun á milli Mathúss Garðabæjar að Garðatorgi 4b og aðlægra íbúða á hæðinni ofan við veitingastaðinn; þ.e. íbúða 207 og 208.
Niðurstöður hljóðmælingar eru að bæði mæld högg- og lofthljóðeinangrun er innan tilskilinna marka hljóðstaðals ÍST 45:2011 frá eldhúsi og upp í aðliggjandi íbúðir. Það sama á einnig við hvað varðar ákvæði nýs hljóðstaðals ÍST 45:2016 sem er samhljóða þeim eldri í þessu efni.
Með vísan til niðurstaðna hljóðmælinga getur bæjarráð ekki séð að fyrir hendi séu ástæður til að mæla með afturköllun rekstrarleyfis Mathúss Garðabæjar.
Málsnúmer 1811157
09
Bréf UMF Stjörnunnar um Þorrablót 2019, dags. 14.11.18.
Í bréfinu er farið fram á leyfi til að halda þorrablót Stjörnunnar í íþróttamiðstöðinni Mýrinni. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Málsnúmer 1811161
10
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, dags. 13.11.18.
Lögð fram.
Málsnúmer 1811177
11
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn, dags. 15.11.18.
Lögð fram.
Málsnúmer 1811181
12
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (brottfall kröfu um ríkisborgararétt), 45. mál., dags. 15.11.18.
Lagt fram.
Málsnúmer 1811182
13
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og málefnum aldraðra (búseturéttur aldraðra, öryggisíbúðir), 40. mál., dags. 15.11.18.
Lagt fram.
Málsnúmer 1811122
14
Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um verklagsreglur vegna viðauka við fjárhagsáætlun, dags. 07.11.18.
Málsnúmer 1702065
15
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Garðabæjar gegn íslenska ríkinu, dags. 15.11.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra í samráði við lögmenn bæjarins að taka ákvörðun um hvort dómnum verði áfrýjað.