Umsagnarbeiðni vegna kröfu um afturköllun á rekstrarleyfi. veitingastaðar að Garðatorgi 4.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
42. (1857). fundur
Fyrir liggur ný hljóðmæling sem framkvæmd var 18. október 2018 til að ákvarða loft- og högghljóðeinangrun á milli Mathúss Garðabæjar að Garðatorgi 4b og aðlægra íbúða á hæðinni ofan við veitingastaðinn; þ.e. íbúða 207 og 208.
Niðurstöður hljóðmælingar eru að bæði mæld högg- og lofthljóðeinangrun er innan tilskilinna marka hljóðstaðals ÍST 45:2011 frá eldhúsi og upp í aðliggjandi íbúðir. Það sama á einnig við hvað varðar ákvæði nýs hljóðstaðals ÍST 45:2016 sem er samhljóða þeim eldri í þessu efni.
Með vísan til niðurstaðna hljóðmælinga getur bæjarráð ekki séð að fyrir hendi séu ástæður til að mæla með afturköllun rekstrarleyfis Mathúss Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
31. (1846). fundur
Bæjarráð samþykkir að áður en umsögn verði veitt láti rekstraraðili mæla að nýju högghljóðeinangrun frá eldhúsi í framhaldi af úrbótum á húsnæðinu.
Bæjarráð Garðabæjar
04
28. (1843). fundur
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að afla upplýsinga um málið hjá heilbrigðisnefnd ásamt því að kanna hjá rekstraraðila og húseiganda varðandi mögulegar úrbætur á húsnæðinu.