28. (1843). fundur
28. (1843). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
14.08.2018
Kl. 08:00 - 08:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1802014
01
Vinastræti 6-8 (6-10) - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG ? íbúðum, kt. 600115-0220 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 31 íbúð að Vinastræti 6-8.
Málsnúmer 1806168
02
Urriðaholtsstræti 34 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HK ? húsum ehf., kt. 491116-0990 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 15 íbúðum að Urriðaholtsstræti 34.
Málsnúmer 1808047
03
Bréf Skógræktarfélags Garðabæjar varðandi samstarf um mat á verðgildi Smalaholts, 01.08.18.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið félagsins um að fram fari samstarf við mat á skógrækt í Smalaholti komi til skerðingar á svæðinu vegna skipulagsbreytinga.
Bæjarráð telur að á meðan ekki liggja fyrir ákvarðanir um skipulag svæðisins geti það ekki talist tímabært að meta verðgildi skógræktar á svæðinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611104
04
Erindi Landsnets um afturköllun á framkvæmdaleyfi vegna Lyklafellslínu, dags. 19.06.18.
Bæjarráð samþykkir að verða við kröfu Landsnets hf. um afturköllun framkvæmdaleyfis fyrir Lyklafellslínu innan lögsögu Garðabæjar sem samþykkt á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 7. desember 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1804129
06
Erindi Björgvins Sigurðssonar um framlengingu athugasemdarfrests vegna auglýsingar á tillögu um breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs.
Bæjarráð telur ekki tilefni til framlengingar á fresti til athugasemda samkvæmt auglýsingu um tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Bæjargarð þar sem gerð er grein fyrir sex 9,15 metra háum ljósamöstrum við íþróttavöll. Umrædd tillaga að breytingu er í samræmi við það sem áður hefur verið kynnt um lýsingu vallarins og er lögð fram til að taka af allan vafa um gildi framkvæmda við uppsetningu lýsingar.
Athugasemdum málaðila er vísað til skipulagsnefndar í samræmi við efni auglýsingar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi bæjargarðs, samkvæmt 1. mgr. 43. gr. sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða til fundar með málsaðila.
Málsnúmer 1805051
07
Bréf GKG varðandi uppbyggingu á golfsvæði við Vífilsstaði, dags. 08.08.18.
Bæjarráð tekur jákvætt í að veita golfklúbbnum heimild til að hefja vinnu við hönnun á viðbyggingu og vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árin 2019 og 2020.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1802336
08
Tillaga um niðurrif húsa við Lækjarfit.
Bæjarráð samþykkir að fram fari útboð vegna niðurifa á þremur húsum í eigu bæjarins við Lækjarfit 3, 5 og 7.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1808083
09
Umsagnarbeiðni vegna kröfu um afturköllun á rekstrarleyfi veitingastaðar að Garðatorgi 4.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að afla upplýsinga um málið hjá heilbrigðisnefnd ásamt því að kanna hjá rekstraraðila og húseiganda varðandi mögulegar úrbætur á húsnæðinu.
Málsnúmer 1806154
10
Samningur um ráðningarkjör bæjarstjóra.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (SHJ,SG,AG,JS) samning um ráðningarkjör bæjarstjóra.
Ingvar Arnarson situr hjá.